Félagsmiðstöðvar

Félagsmiðstöðvar eru mikilvægur þáttur í lífi barna og unglinga og gegna því veigamikla hlutverki að sinna tómstunda- og félagsmálum utan hefðbundins

Flýtilyklar

Félagsmiðstöðvar

Félagsmiðstöðvar eru mikilvægur þáttur í lífi barna og unglinga og gegna því veigamikla hlutverki að sinna tómstunda- og félagsmálum utan hefðbundins skólatíma. Markhópur félagsmiðstöðvanna er unglingar í 8. - 10. bekk en einu sinni í mánuði er í boði viðburður fyrir miðstig grunnskólans.

Félagsmiðstöð á að stuðla að jákvæðum og þroskandi samskiptum meðal unglinganna og örva félagsþroska þeirra og lýðræðisvitund. Starfsemi félagsmiðstöðvanna er skipulögð af unglingunum sjálfum í samráði við starfsfólk.

Boðið er upp á fjölbreytta klúbbastarfsemi og einnig opin hús, þannig að sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Mikilvægt er að börnin og unglingarnir finni að þau séu velkomin og talað sé við þau á jafnréttisgrundvelli. Einnig gegnir félagsmiðstöðin ákvenu forvarnahlutverki, hvort heldur sem er í gegnum leik eða skipulagt forvarnastarf.

Forstöðumaður æskulýðsmála er Alfa Aradóttir, sími 460-1237, alfaa@akureyri.is

 Starfsskrá forvarna- og æskulýðsmála 2010

Sumarverkefni 2011

 Félagsmiðstöðvar Akureyrar eru fjórar talsins.

Dimmuborgir í Giljaskóla.
Starfsmenn: Umsjónarmaður er Hlynur Birgisson hlynur@akureyri.is og aðstoðarmaður er Eva Björk Benediktsdóttir. Sími: 460-1239 og 846-9941 (Hlynur).  Heimasíða: Facebook / Félagsmiðstöðin Dimmuborgir. Félagsmiðstöðin er opin á mánudags- og miðvikudagskvöldum frá kl. 19:30-21:30 og á þriðjudögum frá kl. 17:00-19:00 fyrir 8-10 bekk. Einu sinni í mánuði eru miðstigsopnanir fyrir 5 - 7 bekk frá kl. 17:00 til 19:00.

Himnaríki í Glerárskóla.
Starfsmenn: Umsjónarmaður er Linda Björk Pálsdóttir lindabjork@akureyri.is og aðstoðarfólk er Guðný Lára Gunnarsdóttir gudnylara@akmennt.is og Pétur Karl Ómarsson. Sími: 460-1239, 868-3804 (Linda) og 866-3059 (Guðný). Heimasíða: Facebook / Félagsmiðstöðin Himnaríki. Opnunartími: Þriðjudaga 16:30 - 18:30 19:30-21:20 og fimmtudaga kl. 19:30 - 21:30 fyrir 8.-10. bekk og miðstigsopnanir fyrir 5 - 7 bekk eru einu sinni í mánuði.

Trója  í Rósenborg. Trója er sameiginleg félagsmiðstöð fjögurra skóla: Lundarskóla, Brekkuskóla, Oddeyrarskóla og Naustaskóla.
Starfsmenn: Umsjónarmaður og tengiliður Lundarskóla er Gunnlaugur V. Guðmundsson gunnlaugur@akureyri.is, tengiliður Oddeyrarskóla og Naustaskóla er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir vordis@akureyri.is og Dagný Björg Gunnarsdóttir er tengiliður Brekkuskóla dagnybjorg@akureyri.is  Sími: 460-1239, 661-2143 (Gulli), 660-4681 (Silla) og 869-3666 (Dagný). Heimasíða: Facebook / Félagsmiðstöðin Trója. Opnunartími: Mánudaga 17:00-19:00 og fimmtudaga kl. 19:30 - 21:30 og miðstigsopnanir fyrir 5 - 7 bekk eru einu sinni í mánuði.

Undirheimar í Síðuskóla
Starfsmenn:  Umsjónarmaður er Linda Björk Pálsdóttir lindabjork@akureyri.is og aðstoðarmaður Árni Víðir Jóhannesson. Sími: 462-2588 og 868-3804. Heimasíðu: Facebook / Félagsmiðstöðin Undirheimar. Opnunartími: Mánudaga 17:00-19:00 og 19:30-21:30 og miðvikudaga kl. 19:30-21:30 og miðstigsopnanir fyrir 5.-7. bekk eru einu sinni í mánuði.



Akureyri öll lífsins gæði
þriðjudagur 22.05. 2012
kl. 08:20
+8.5°SA 4 m/s
  • Rosenborg - hausmynd

    Rósenborg

    Skólastíg 2, 600 Akureyri, s. 460-1230

    Verið velkomin á heimasíðu Rósenborgar.
    Rósenborg er aðsetur samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrarbæjar. Margvísleg starfsemi fer fram í húsinu sem ber undirtitilinn möguleikamiðstöð.

 

Þú breytir fætinum í stillingum