Ráðgjafartorg

„Á Akureyri koma fjölmargir að samráði um það hvernig best megi aðstoða bæjarbúa sem lent geta í erfiðleikum vegna efnahagsástandsins. Starfandi er almannaheillanefnd sem fylgist vel með þróun mála í bænum og mun bregðast við eftir því sem aðstæður gefa tilefni til á hverjum tíma."

Ráðgjafartorg

Akureyrarbær hefur í samstarfi við ýmsa aðila í bæjarfélaginu tekið saman samræmdar upplýsingar inn á sérstakt Ráðgjafartorg vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í efnahagslífi þjóðarinnar.

Markmiðið er að samræma og auðvelda aðgang að þjónustu og ráðgjöf á vegum Akureyrarbæjar og samstarfsaðila. Ráðgjafartorgið er samstarfsverkefni fjölmargra aðila sem myndað hafa Almannaheillanefnd í bæjarfélaginu. Þetta eru Akureyrarbær, Heilsugæslustöðin, Rauði krossinn, kirkjurnar, verkalýðsfélögin, framhaldsskólarnir, Háskólinn á Akureyri, Vinnumálastofnun og Sjúkrahúsið á Akureyri.

Á Ráðgjafartorginu eru teknar saman ýmsar upplýsingar sem gagnast geta þeim sem telja sig þurfa aðstoð vegna þeirra erfiðleika sem þjóðin glímir nú við. Þar eru hlekkir inn á ýmsar síður á vegum fjölda stofnana í þjóðfélaginu þar sem finna má svör við mörgum þeirra spurninga sem kvikna við þær aðstæður sem nú eru uppi. Þá eru hér upplýsingar um hvert leita megi ef þörf er á aðstoð eða ráðgjöf.

Allar ábendingar og athugasemdir vegna Ráðgjafartorgs eru vel þegnar.
Sendið tölvupóst á akureyri@akureyri.is.





Útlit síðu:

Okt08_4

Þetta vefsvæði byggir á Eplica