Öryggisnefnd Öldrunarheimila Akureyrar
Öryggistrúnaðarmenn:
Brynja Sverrisdóttir Eini- og Grenihlíð, Kristján Helgason Kjarnalundi og Liv Stefánsdóttir Reynihlíð
Öryggisverðir:
Friðný B. Sigurðardóttir þjónustustjóri og Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri
Öryggistrúnaðarmenn skulu kosnir af starfsmönnum til tveggja ára í senn, öryggisverðir eru skipaðir af atvinnurekanda til tveggja ára í senn.
Öryggisnefnd skal taka til umfjöllunar mál er varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Nefndin kýs sér sjálf formann og ritara og skulu þeir til skiptis vera úr röðum öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða.
Öryggisnefndin heldur fundi eins oft og hún sjálf telur þörf á en þó eigi sjaldnar en fjórum sinnum á ári og setur fundargerðir á sameiginlegt drif Öldrunarheimila Akureyrar sem er aðgengilegt starfsfólki.
Helstu verkefni öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða eru að:
- taka þátt í gerð áhættumats og fylgja því eftir ásamt atvinnurekanda
- kynna starfsmönnum þá áhættu, sem er á vinnustaðnum að því er varðar öryggi þeirra og heilsu, og sjá til þess að þeir fái nauðsynlega fræðslu og þjálfun
- fylgjast með að ekki viðgangist einelti á vinnustaðnum
- vélar og tæknibúnaður, hættuleg efni og starfsaðferðir stofni ekki lífi og heilsu starfsmanna í hættu
- gæta þess að persónuhlífar séu til staðar, í góðu ástandi og notaðar í samræmi við reglur
- fylgjast með að skráningu slysa, óhappa og atvinnusjúkdóma sé sinnt
Nánari upplýsingar í reglugerð 920/2006 um vinnuverndarstarf á vinnustöðum
Vinnuverndarstefna Öldrunarheimila Akureyrar
Ábyrgðaraðili á að stefnu sé fylgt eftir í daglegum rekstri:
Brit Bieltvedt (BB) framkvæmdastjóri ásamt forstöðumönnum deilda (FD).
|
Vinnuverndarstefna |
Ábyrgð |
Hvernig |
|
Tryggjum öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi og komum í veg fyrir slys og atvinnutengda sjúkdóma. |
BB og FD |
Gera áhættumat fyrir fyrirtækið og framkvæma nausynlegar úrbætur. Öll vinna er í samræmi við Vinnuverndarlögin. Hafa áhættumatið lifandi og aðgengilegt öllu starfsfólki. Skrá öll slys og næstum slys. |
|
Sjá til þess að starfsmenn fái nauðsynlega fræðslu og þjálfun við störf sín. |
FD |
Að starfsmenn hafi grunnþekkingu á sviði vinnuverndar með þvi að sækja námskeið og hafa aðgang að fræðskuefni tengt vinnuvernd. Hafa vinnuvernd hluta af nýliðafræðslu. Ræða við starfsfólk eftir ákveðinn reynslutíma. |
|
Hafa vinnuverndina virka í daglegum rekstri. |
FD |
Aldrei að gefa afslátt á vinnuverndinni. Áhættumat um öll ný og óvenjjuleg störf. Hafa vinnuferla skýra og fylgja verklagsreglum. Opin fyrir breyttum og bættum aðferðum. |
|
Tryggjum að vélar, tæki og varasöm efni stofni ekki lífi og heilsu starfsmanna í hættu. |
FD |
Tryggja að starfsmenn hafi viðeigandi réttindi og kunnáttu á þær vélar og tæki sem eru notuð. Öryggisblöð fyrir hættumerkt efni séu til staðar. |
|
Stuðla að andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan starfsmanna. |
BB og FD |
Stuðla að fjölbreyttum verkefnum fyrir alla starfsmenn. Að starfsmenn hafi mikið sjálfræði og sveigjanleika við vinnuna. Að starfsmenn styðji og hjálpi hver öðrum. |
|
Tryggja öryggi starfsmanna sem vinna einir. |
FD |
Hafa samskiptaleiðir eða boðleiðir skýrar. Öll verk skipulögð þannig að einhver viti hvar starfsmenn eru og hvenær vinnu líkur. Hafa alltaf síma á sér. |
|
Hafa virka viðbragðs-og rýmingaáætlun vegna t.d. eldsvoða, jarðskjálfta, flóða o. fl. Slökkvibúnaður og skyndihjálparbúnaður sé í lagi. |
BB og FD |
Hafa flóttaleiðir vel merktar. Halda rýmingaræfingar. Yfirfara geglulega neyðar- og slökkvibúnað. |
Viðbrögð við brunaboðum
Tilgangur og afmörkun:
Að allir starfsmenn séu öruggir og vel undirbúnir ef eldur kemur upp og viti hvað ber að gera þegar brunaviðvörunarkerfi fer í gang.
Ábyrgð:
- Allir starfsmenn bera jafna ábyrgð ef rýma þarf húsið.
Viðbrögð:
- Ef brunaboði fer í gang tilkynnir Securitas það strax til Slökkviliðs.
- Ef um er að ræða staðfestan eld, skal viðkomandi deild þar sem eldur er hringja í 112 og láta vita.
Stjórnendur aðgerða:
Þeir sem mæta við aðalstjórnstöð í anddyri og stýra aðgerðum þar til slökkviliðið mætir á staðinn eru á
á dagvinnutíma:
starfsmaður í afgreiðslu og yfirmaður í eldhúsi
utan dagvinnutíma:
vakthafandi hjúkrunarfræðingur/lyfjavakt/vaktsjóri í Austurhlíðum og Víðhlíð
Aðrar deildir bíða eftir fyrirmælum frá stjórnendum um framhald aðgerða
- Stjórnendur kanna orsök boða í stjórnstöð.
- Fara á næstu stöð
- Athuga hvaðan boðin berast (sjá númer og númeraskrá)
- Stöðvun á hljóðgjafa (bjöllur):
- Slökkva á brunabjöllu,
- Lykill settur í, kerfið opnað
- Slökkt á viðvörunarbjöllu
- Kannið orsök boðanna þaðan sem þau koma:
- Fara á staðinn og athuga hvort um eld sé að ræða
- Ef ekki er eldur hringja í Securitas 460 6261 til að afboða slökkviliðið
- Skrá í þjónustubók eðli boðunar ef um bilun/feilboð er að ræða
- Ef eldur rýmið svæði sem eru í hættu samkvæmt áætlun (sjá mynd)
- Endurstillið ekki brunaviðvörunarkerfið fyrr en skýring er fundin:
- Endurræsa kerfið
Símar:, Securitas 460 6261, Umsjónarmaður 893 1730, Neyðarlínan 112
Áreitni og einelti
Allt starfsfólk Akureyrarbæjar á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og að það hafi tækifæri til að vinna störf sín án þess að eiga á hættu einelti og kynferðislega áreitni. Sjá nánar hér: http://www.akureyri.is/starfsmannahandbok/areitni
Vinnuvernd
Vinnuveitendum ber að uppfylla ýmis lög og reglur er varða vinnuvernd á vinnustað, sjá nánar hér: http://www.akureyri.is/starfsmannahandbok/vinnuvernd
Vellíðan
Það er mikilvægt að starfsfólki líði vel í vinnunni. Hér er að finna ýmsar upplýsingar er lúta að því hvernig við getum látið okkur líða sem best: http://www.akureyri.is/starfsmannahandbok/Vellidan

