Þjónusta presta
Séra Gylfi Jónsson starfar í hlutastarfi sem prestur heimilanna og sér hann um helgistundir á hverju heimili og hverri deild fyrir sig. Hann sér einnig vikulega um sameiginlegar helgi- og söngstundir í samkomusalnum í Hlíð. Í söngstundum eru ýmist sungin ættjarðarlög eða slegið á léttari strengi og gripin dægurlög liðins tíma. Dagþjónustugestir eiga einnig aðgang að þessari þjónustu.
Íbúar öldrunarheimilanna og aðstandendur eiga einnig kost á persónulegum viðtölum við séra Gylfa, símanúmer hans er: 895 5550.
Íbúar öldrunarheimilanna eiga aðgang að prestum safnaðanna á Akureyri eins og aðrir íbúar
Akureyrarbæjar. Haldnar eru messur í samkomusalnum í Hlíð og í
Kjarnalundi. Prestarnir koma til skiptis á heimilin, messa og ræða við íbúa og aðstandendur eftir þeirra óskum.
Hárgreiðslustofa
Alda Þorvaldsdóttir hárgreiðslumeistari er með hárgreiðslustofu í Hlíð og í Kjarnalundi. Hún þjónustar íbúa öldrunarheimilanna og fólk utan úr bæ eftir því sem tími leyfir. Boðið er upp á alla almenna hársnyrtingu fyrir dömur og herra.
Íbúar öldrunarheimilanna fá afslátt af gjaldi fyrir hársnyrtingu, aðrir greiða fullt gjald.
Tímapantanir eru í síma 460 9214 og 660 4133.
Fótaaðgerðarstofa
Birna Björnsdóttir fótaaðgerðafræðingur þjónustar íbúa öldrunarheimilanna. Pantanir í síma 891 6291. Íbúar greiða fyrir þjónustuna.
Verslun
Rekin er lítil verslun í Hlíð "Litla
kaupfélagið", skammstafað LKF. "Litla kaupfélagið" er opið virka daga frá klukkan 11.30 - 12.00 og er væntanlega hið minnsta og með
síðustu kaupfélögum á landinu. Í Kjarnalundi er einnig rekin verslun sem er opin klukkan 13.00 - 13.15 virka daga. Í LKF og verslun Kjarnalundar
er til sölu ýmis smávara og sælgæti fyrir íbúa, starfsfólk og gesti. Starfsmenn félagsstarfsins á hvorum staðnum sjá um
innkaup og sölu í verslununum.
Læknisþjónusta
Samningur er við Sjúkrahúsið á Akureyri um þjónustu sérfræðilækna í öldrunarlækningum í 120% starfi með fastri viðveru á hverri deild.
Þvottahús
Þvottahús Öldrunarheimila Akureyrar er staðsett í Hlíð. Þar er þvegið allt lín Hlíðar og Kjarnalundar. Persónulegur fatnaður íbúa Hlíðar og Kjarnalundar er einnig þveginn þar. Annar þvottur er þveginn á hverju heimili.
Á ársgrundvelli eru þvegin um 120 tonn af þvotti í þvottahúsinu.
Yfirmaður þvottahúss er Ásta Hrönn Jónasdóttir, sími 460 9197, netfang: astaj@akureyri.is
Mötuneyti
Í Hlíð er rekið mötuneyti öldrunarheimilanna. Í eldhúsinu er matreiddur hollur og fjölbreyttur matur, auk þess sérfæðis sem þörf er á á hverjum tíma. Leitast er við að framleiða heimilislegan mat sem flestum hentar.
Í mötuneytinu er eldaður allur matur fyrir íbúa Hlíðar og geta þeir starfsmenn sem vilja keypt sér mat. Auk þess er eldaður hádegisverður fyrir íbúa Kjarnalundar og Bakkahlíðar. Þar að auki sér mötuneytið um matreiðslu á heimsendum mat sem seldur er gegnum heimaþjónustu og máltíðir sem seldar eru í þjónustumiðstöðinni í Víðilundi.
Yfirmaður mötuneytisins er Karl F. Jónsson, sími 460 9180, netfang: karlj@akureyri.is
Umsjón húseigna
Fasteignir Akureyrarbæjar sjá um viðhald á húsnæði öldrunarheimilanna, en umsjónarmaður húseigna sér um minni viðgerðir og viðhald.
Umsjónarmaður húseigna er Daði Hálfdánsson, sími 893 1730, netfang: dadih@akureyi.is
Síðast uppfært 13.10.2011

