Félagsstarfið er staðsett í "hjarta hússins" þ.e.a.s. miðsvæðis. Þar hittast íbúar, dagþjónustugestir og
starfsfólk. Þarna er góður félagsskapur þar sem fólk spjallar saman yfir kaffibolla, grípur í tómstundaiðju og
nýtur samveru hvers annars.
Markmið félagsstarfsins í Hlíð er að leita leiða til að virkja og viðhalda andlegri og líkamlegri færni íbúa og um leið að skapa vinalegt og þægilegt andrúmsloft þar sem öllum líður vel. Reynt er að höfða til einstaklingsins, styrkja færni hans og sjálfsmynd.
Boðið er upp á fjölbreytta tómstundaiðju s.s. handverk, upplestur, spurningahópa, leikfimi, spilavist, bingó, keilu, myndasýningar og ýmsar skemmtanir tengdar árstíðum. Einnig er farið inn á deildir í Hlíð með ýmiss konar afþreyingu.
Boðið er upp á Kráarkvöld með lifandi tónlist á 6-8 vikna fresti og er þá sungið og dansinn stiginn af bestu list.
Margir sönghópar, skemmtikraftar o.fl. bjóða upp á hina fjölbreyttustu skemmtun og er allt slíkt vel þegið og ánægjuleg tilbreyting í tilveruna.
Fastir dagskrárliðir í félagsstarfi í Hlíð:
Kl. 10.00 Kollgátan, alla virka daga.
Kl. 10.30 Sögulestur, alla virka daga.
Kl. 11.00 Leikfimi, alla virka daga, nema miðvikudaga þá er helgistund.
Aðrir fastir dagskrárliðir eru eftirfarandi:
|
Vikudagar |
Tímasetning |
Afþreying |
Staðsetning |
|
Mánudagar |
kl. 13.30 |
Spilavist |
Samkomusalur |
|
Þriðjudagar |
kl. 14.00 kl. 15.15 |
Keila Blanda |
Glaðheimar Samkomusalur |
|
Miðvikudagar |
kl. 13.30 kl. 11:00 kl. 14:00 |
Spilavist Helgistund Opið kaffihús |
Samkomusalur Samkomusalur Kaffi Sól |
|
Fimmtudagar |
kl. 14.00 |
Bingó |
Samkomusalur |
|
Föstudagar |
kl. 13.15 kl. 14.00 kl.15.15 |
Söngur og sherry Keila Fjöldasöngur |
Handverksstofa Glaðheimar Samkomusalur |
Handverksstofan er opin frá kl. 9.00 - 16.00 alla virka daga fyrir utan föstudaga en þá er lokað kl. 15.00.
Leiðbeinendur í handverki búa yfir mikilli kunnáttu og þekkingu í handverki og bjóða upp á aðstoð við taumálun, vinnu við tré og útskurð, keramik, vefnað, silkimálun, prjón, hekl, útsaum, vefnað, glermálun, o.fl.
Lykilorðin í félagsstarfinu eru:
- Að vera jákvæð/ur.
- Að auka vellíðan.
- Að lifa lífinu lifandi.
- Að skapa tilbreytingu í daglegt líf.
- Að rækta manninn.
- Að auka lífsgæði og gera dagana innihaldsríka og skemmtilega.
Yfirmaður félagsstarfsins er Friðný Björg Sigurðardóttir, fridny@akureyri.is
Síðast uppfært 09.09.2011

