Auk daglegrar umönnunar og hjúkrunar er lögð áhersla á fjölbreytta og góða þjónustu á Öldrunarheimilum Akureyrar og er reynt að koma til móts við óskir og þarfir hvers einstaklings eins og kostur er.
Á öldrunarheimilunum er boðið upp á iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, félagsstarf og afþreyingu ýmiss konar, læknisþjónustu, hár- og fótaaðgerðir o.fl. Auk þess er rekið mötuneyti, þvottahús og lítil verslun. Sjá nánar um þessi ólíku þjónustutilboð hér á eftir.
Þjónustusvið sér um áðurnefnda þjónustu fyrir utan mötuneyti og þvottahús, yfirmaður þjónustusviðs er Friðný Björg Sigurðardóttir, netfang: fridny@akureyri.is
Rekstrarsvið sér um rekstur mötuneytis, þvottahúss og umsjón húseigna, yfirmaður þess er Heiðrún Björgvinsdóttir, netfang: heidrun@akureyri.is báðar með aðsetur í Hlíð, Austurbyggð 17, 600 Akureyri, sími: 460-9100

