Á Öldrunarheimilum Akureyrarbæjar eru nokkur skammdvalarrými sem ætluð eru íbúum á svæði Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.
Rými þessi eru einbýli og eru veitt í allt að 4 vikur í senn eða eftir samkomulagi.
Dvöl í skammtímaplássi er hugsuð sem eitt af úrræðum til þess að fólk geti dvalið sem lengst heima, en í dvölinni getur fólk byggt sig upp og ættingjar hvílast á meðan.
Hér er að finna reglur um skammtímadvöl og eru umsækjendur beðnir um að kynna sér þær áður en sótt er um.
Hér er hægt að ná í umsóknareyðublað fyrir skammtímadvöl. Umsóknin sendist til heimahjúkrunar á heilsugæslustöðinni.
Nánari upplýsingar um skammtímadvöl veitir forstöðumaður heimahjúkrunar.
Símatími milli kl. 13-14, mánudaga til fimmtudaga, sími 460-4600, netfang: heimahjukrun@hak.ak.is

