Minningarkort Öldrunarheimila Akureyrar eru til sölu í afgreiðslunni á Hlíð alla virka daga frá kl. 8 til 12 og 12:30 til 16. Þau er einnig hægt að fá í blómaversluninni Akri og blómabúðinni Mímósa, Blómabúð Akureyrar og Bókval. Allur ágóði af sölu kortanna rennur til Öldrunarheimila Akureyrar og er nýttur til kaupa á ýmsum búnaði fyrir heimilin.
Öldrunarheimili Akureyrarbæjar
Auk daglegrar umönnunar og hjúkrunar er lögð áhersla á fjölbreytta og góða þjónustu á Öldrunarheimilum Akureyrar og er reynt að koma til móts við óskir og þarfir hvers einstaklings eins og kostur er.

