Öldrunarheimil Akureyrar

Auk daglegrar umönnunar og hjúkrunar er lögð áhersla á fjölbreytta og góða þjónustu á Öldrunarheimilum Akureyrar og er reynt að koma til móts við óskir og þarfir hvers einstaklings eins og kostur er.

Oldrunarheimili2
Kjarnalundur
Kjarnalundur

Kjarnalundur er heimili fyrir 44 íbúa í hjúkrunar- og dvalarrýmum. Kjarnalundur stendur á fallegum stað í Kjarnaskógi rétt sunnan Akureyrar. Húsið er á 4 hæðum og eru vistarverur heimilismanna á fyrstu, annarri og þriðju hæð.

Í kjallara er félagsstarf sem opið er alla virka daga en þar er boðið upp á ýmsa afþreyingu s.s. spilamennsku, upplestur og handavinnu.

Á annarri hæð er borðsalur þar sem allir íbúar borða saman og er sá salur einnig notaður sem samkomusalur fyrir ýmsar uppákomur s.s. söngstundir, tónleika, helgistundir, o.fl. Á þriðju hæð er setustofa íbúanna en setkrókur og sjónvarp er einnig í borðsal. Í Kjarnalundi er starfrækt lítil verslun sem opin er 12.45 – 13.15 alla virka daga og þar er hægt að kaupa sælgæti og brýnustu nauðsynjar.

Boðið er reglulega upp á hársnyrtingu og fótaaðgerðir. Sjúkraþjálfun fer fram tvo daga í viku, auk þess stendur iðjuþjálfun til boða tvo daga í viku.

Hjúkrunardeildarstjóri er Karólína Baldvinsdóttir. Viðvera alla virka daga frá kl. 8:00 til 13:00

karolinab@akureyri.is

Læknir Kjarnalundar er: Ragnheiður Halldórsdóttir.
Viðvera á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 8:00 til 12:00.

Símanúmer: 460 -9250. Fax: 461-1396.


Útlit síðu:

Oldrunarheimili2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica