
Kjarnalundur er heimili fyrir 44 íbúa í hjúkrunar- og dvalarrýmum. Kjarnalundur stendur á fallegum stað í Kjarnaskógi rétt sunnan Akureyrar. Húsið er á 4 hæðum og eru vistarverur heimilismanna á fyrstu, annarri og þriðju hæð.
Í kjallara er félagsstarf sem opið er alla virka daga en þar er boðið upp á ýmsa afþreyingu
s.s. spilamennsku, upplestur og handavinnu.
Á annarri hæð er borðsalur þar sem allir íbúar borða saman og er sá salur einnig notaður sem samkomusalur fyrir ýmsar uppákomur s.s. söngstundir, tónleika, helgistundir, o.fl. Á þriðju hæð er setustofa íbúanna en setkrókur og sjónvarp er einnig í borðsal. Í Kjarnalundi er starfrækt lítil verslun sem opin er 13:00 – 13:15 alla virka daga og þar er hægt að kaupa sælgæti og brýnustu nauðsynjar.
Boðið er reglulega upp á hársnyrtingu og fótaaðgerðir. Sjúkraþjálfun fer fram tvo daga í viku, á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 8:00-12:00. Auk þess er þjónusta iðjuþjálfa í boði tvo daga í viku á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 9:00-12:00.
Hjúkrunardeildarstjóri er Þóra Sif Sigurðardóttir, viðvera alla virka daga frá kl. 8:00-16:00. thorasif@akureyri.is
Læknar Kjarnalundar eru: Ragnheiður Halldórsdóttir og Arna Rún Óskarsdóttir.
Ragnheiður vinnur aðra hvora viku á þriðjudögum og fimmtudögum. Arna Rún vinnur vikuna á móti Ragnheiði á
miðvikudögum.
Símanúmer: 460 -9250. Fax: 461-1396.

