Í Bakkahlíð er sambýli fyrir fólk sem er með minnissjúkdóma. Þar er leitast við að skapa sem heimilislegastar aðstæður og gera líf íbúa sem líkast því sem gerist í heimahúsum.
Bakkahlíð er einbýlishús þar sem búa 8 íbúar og allir í sérbýli. Þar taka allir þátt í störfum á heimilinu, hver eftir sinni getu og leitast er við að finna hæfileg verkefni fyrir hvern og einn.
Forstöðumaður Bakkahlíðar er:
Helga Frímannsdóttir,
Viðvera alla virka daga frá kl. 8-16
helgaf@akureyri.is
Hjúkrunarfræðingur Bakkahlíðar er:
Harpa Kristjánsdóttir,
Viðvera þriðjudaga og miðvikudaga frá 12:00 til 16:00.
Læknir Bakkahlíðar er:
Meredith Cricco,
Viðvera miðvikudaga frá kl. 12:00 til 14:00.
Símanúmer: 462 7012

