Um nýliðna helgi var hinn frábæri vestfirski karlakór, Fjallabræður, með tónleika í salnum í Hlíð. Kórfélagar eru um 60 talsins og eru þeir flestir búsettir í Reykjavík en rekja ættir sínar vestur á firði. Þeir fluttu skemmtileg lög sem voru ýmist frumsamin eða þekkt íslensk lög með rokkuðu undirspili fimm manna hljómsveitar. En sveitina skipa þau Óskar Þormarsson og Orri Guðmundsson á trommur, Helgi Egilsson á bassa, kórstjóri og á gítar er Halldór Gunnar Pálsson og síðast en ekki síst fallegasti Fjallabróðirinn og Akureyramærin, Unnur Birna (Bassa) Björnsdóttir á fiðlu og söng. Þetta voru afar skemmtilegir tónleikar bæði hvað varðar tónlist og líflegheit kórfélaga. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og vonandi eigum við eftir að heyra meira í þeim í framtíðinni.
Eftir tónleikana bauð áhöfnin á fjölveiðiskipi Samherja hf., Vilhelm Þorsteinssyni EA-11 í kaffi og meðlæti. Tónleikagestir og kórfélagar töldu um 200 manns þannig að það var líflegt og skemmtilegt í kaffinu. Áhöfninni þökkum við kærlega fyrir veitingarnar og þann hlýhug sem þeir sýndu íbúum í Hlíð.



