Í síðustu viku var fyrsta kráarkvöld ársins.
Það var hin frábæra hljómsveit Hlíðin mín fríða sem lék fyrir dansi en í henni eru: Snorri Guðvarðsson, Brynleifur Hallsson, Finnur Finnsson og auk þeirra gestahljóðfæraleikararnir þau Wolfgang Frosti Sahr og Linda Guðmundsdóttir en hún spilaði á harmónikku og er jafnframt prýðis söngkona. Fjölmennt var og allir skemmtu sér vel. Ánægjulegt er hvað aðstandendur eru duglegir að mæta þessi kvöld. Nú er bara beðið eftir næsta kráarkvöldi – fáum í millitíðinni að hita upp á þorrablóti þ. 10. febrúar.


