04. janúar 2012
Mikil eftirvænting ríkti þegar þeir frændur Örn Viðar Birgisson og Jóhann Már Jóhannsson gengu í salninn. Létt yfirbragð og húmor þeirra í sambland með jólalögum og öðrum þekktum lögum hreif alla viðstadda. Það mættu á annað hundrað manns á tónleikana!! Áheyrendur voru yfir sig hrifnir og “Konnararnir” sögðu að þessir tónleikar væru orðnir mikilvægur þáttur í jólaundirbúningi þeirra.
Við þökkum þessum góðu mönnum hjartanlega fyrir komuna og erum strax farin að hlakka til að hlusta á þá að ári.

