Dvalar – og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu ári – heimilið var vígt á 100 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst 1962 og er því 50 ára á þessu ári.
Í tilefni af afmælisárinu ætla heimilin að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með málstofu síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 12:15 - 12:45 í samkomusalnum í Hlíð. Fengnir verða fyrirlesarar úr ólíkum áttum til þess að fjalla um athyglisverð málefni sem varða efri ár. Hrefna Brynja Gísladóttir iðjuþjálfi á Öldrunarheimilum Akureyrar ríður á vaðið mánudaginn 30. janúar nk. og segir frá Eden – hugmyndafræðinni sem unnið er eftir á öldrunarheimilunum. Allir eru velkomnir - innan öldrunarheimilanna sem utan!!

