Öldrunarheimil Akureyrar

Auk daglegrar umönnunar og hjúkrunar er lögð áhersla á fjölbreytta og góða þjónustu á Öldrunarheimilum Akureyrar og er reynt að koma til móts við óskir og þarfir hvers einstaklings eins og kostur er.

Oldrunarheimili2
Dagþjónusta

Dagþjónustan við Öldrunarheimili Akureyrar hefur það að markmiði að auðvelda öldruðum að búa sem lengst á eigin heimili og er þannig stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjón til að geta búið lengur heima. Í dagþjónustu er boðið upp á flutningsþjónustu, mat á heilsufari, þjálfun, tómstundaiðju, félagslegan stuðning, fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við athafnir daglegs lífs.

Dagþjónustugestir geta valið þann dagafjölda sem þeim hentar að mæta í hverri viku.

Dagþjónustan er opin alla virka daga frá kl. 8:30 til 16:00.

Lokað er alla rauða almanaksdaga, aðfangadag og gamlársdag.

Fyrir hverja

Dagþjónustan er ætluð einstaklingum eldri en 67 ára sem búa í heimahúsum.

Hvernig sótt er um

Umsóknir um dagþjónustu skulu berast til Búsetudeildar Akureyrarbæjar Glerárgötu 26, 2. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Einnig er hægt að nálgast eyðublöðin í þjónustuanddyri í Geislagötu 9 og í dagþjónustunni í Hlíð, Austurbyggð 17 og svo HÉR

Upplýsingar um dagþjónustuna veitir Ásta Sigurðardóttir á Búsetudeild í síma 460 1410.

Forföll

Gestir eru beðnir að tilkynna forföll í síma 460 9100.

Kostnaður

Gestir dagþjónustu greiða 850 krónur fyrir heilan dag. Innifalið í gjaldi er akstur og fæði. Greiðsla er innheimt með gíróseðlum sem sendir eru út mánaðarlega.

Akstur

Akstur er í boði á ólíkum tíma. Hægt er að velja um þrjá tíma til að vera sóttur heim, þ.e. kl. 8:00, kl. 10:00 og kl. 13:00 og er ekið heim kl. 13:15 og kl. 16:00. Bílarnir stöðva fyrir framan heimili dagþjónustugesta og er mikilvægt að vera tilbúin/n þegar bíllinn kemur. Akstur hjólastólabifreiðar er á öðrum tímum eftir þörfum.

Matur

Í boði er morgunmatur kl. 9:00, hádegisverður kl. 12:00 og síðdegiskaffi kl. 15:00.

Á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum er yfirleitt boðið upp á fisk. Á þriðjudögum og fimmtudögum er oftast boðið upp á kjöt. Alltaf er boðið upp á súpu eða graut með hádegisverðinum.

Önnur þjónusta í boði fyrir dagþjónustugesti er:

Félagsstarf

Mjög öflugt félagsstarf er starfandi við Hlíð og geta dagþjónustugestir tekið þátt í öllu því félagsstarfi sem er á dagskrá, s.s. ýmiss konar handverki, spilamennsku, bingói, upplestri, keilu o.fl.

Sjúkraþjálfun

Hægt er að fá sjúkraþjálfun að fenginni tilvísun frá lækni. Við sjúkraþjálfunina starfa sjúkraþjálfarar frá Eflingu og þar er ágæt aðstaða til æfinga. Heitur pottur er á staðnum.

Leikfimi

Léttir leikfimitímar eru daglega kl. 11:00. Á sumrin er farið út í gönguferðir ef / þegar veður leyfir.

Iðjuþjálfun

Boðið er upp á iðjuþjálfun við dagþjónustuna. Markmið iðjuþjálfunarinnar er að viðhalda og efla færni notenda þjónustunnar við iðju.

Hvíldaraðstaða

Aðstaða er til að hvíla sig fyrir þá sem óska eftir að geta lagt sig á daginn. Hvíldartíminn er frá kl. 12:30 til 13:45.

Bað

Boðið er upp á aðstoð við bað einu sinni í viku. Gestir þurfa að taka með sér hrein föt og snyrtivörur að heiman s.s. sjampó, krem, hárlagningarvökva, hárspray o.þ.h.

Fótaaðgerðir

Fótaaðgerðafræðingur er með aðstöðu í Hlíð. Dagþjónustugestir geta pantað tíma hjá honum. Fyrir þessa þjónustu þarf að greiða sérstaklega.

Hársnyrting

Alda Þorvaldsdóttir er með hárgreiðslustofu í Hlíð. Dagþjónustugestir geta pantað tíma hjá henni. Fyrir þessa þjónustu þarf að greiða sérstaklega.

Yfirmaður dagþjónustunnar er Friðný Björg Sigurðardóttir, fridny@akureyri.is


Útlit síðu:

Oldrunarheimili2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica