Sveitarstjórnakosningar 2010

Gengið verður til kosninga laugardaginn 29. maí 2010. Akureyringar velja á milli sex framboðslista.

Bæjarstjórnarkosningar

Almennar upplýsingar

Bæjarstjórnarkosningar fóru fram á Akureyri laugardaginn 29. maí 2010.

Niðurstöður kosninganna urðu sem hér segir:

  • A-listi - Bæjarlistinn fékk 799 atkvæði (8,38%)
  • B-listi - Framsóknarflokkur fékk 1177 atkvæði (12,34%)
  • D-listi - Sjálfstæðisflokkur fékk 1220 atkvæði (12,79%)
  • L-listi - Listi fólksins fékk 4142 atkvæði (43,43%)
  • S-listi - Samfylkingin fékk 901 atkvæði (9,45%)
  • V-listi - Vinstri hreyfingin - Grænt framboð fékk 960 atkvæði (10,07%)
  • Auðir seðlar voru 310 (3,25%)
  • Ógildir seðlar voru 28 (0,29%)

Eftirtaldir frambjóðendur náðu kjöri í bæjarstjórn Akureyrar:

  1. Geir Kristinn Aðalsteinsson af L-lista með 4.142 atkvæði
  2. Halla Björk Reynisdóttir af L-lista með 2.071 atkvæði
  3. Oddur Helgi Halldórsson af L-lista með 1.381 atkvæði
  4. Sigrún Björk Jakobsdóttir af D-lista með 1.220 atkvæði
  5. Guðmundur Baldvin Guðmundsson af B-lista með 1.177 atkvæði
  6. Tryggvi Þór Gunnarsson af L-lista með 1.036 atkvæði
  7. Andrea Sigrún Hjálmsdóttir af V-lista með 960 atkvæði
  8. Hermann Jón Tómasson af S-lista með 901 atkvæði
  9. Hlín Bolladóttir af L-lista með 828 atkvæði
  10. Sigurður Guðmundsson af A-lista með 799 atkvæði
  11. Inda Björk Gunnarsdóttir af L-lista með 690 atkvæði

Á kjörskrá voru 12.777 en atkvæði greiddu 9.537 eða 74,6%.





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica