Félagsleg aðstoð
Á fjölskyldudeild og
búsetudeild er veitt félagsleg
aðstoð af ýmsum toga. Þjónustan stendur íbúum Akureyrar til boða og einnig hafa nágrannasveitarfélögin
Hörgársveit, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur og Svalbarðstrandahreppur gert samning við Akureyrarbæ um ráðgjafarþjónustu.
Sérhæfð þjónusta fyrir fatlaða er einnig veitt íbúum Dalvíkurbyggðar, skv. sérstökum þjónustusamningi
við velferðarráðuneytið.
Markmið með félagslegri aðstoð á fjölskyldu- og búsetudeild er að koma einstaklingum og fjölskyldum til aðstoðar í tímabundnum erfiðleikum. Markmið aðstoðarinnar til lengri tíma er alltaf að viðkomandi verði sjálfbjarga. Beitt er félagslegri ráðgjöf og tiltækum félagslegum úrræðum.
Þegar um fatlað fólk og fjölskyldur fatlaðra barna er að ræða er aðstoð oft til lengri tíma og markmið með þeirri þjónustu er að fatlaðir njóti sömu tækifæra og lífsgæða eins og aðrir.
