Ferliþjónusta Akureyrarbæjar er ætluð til afnota fyrir þá einstaklinga sem vegna skertrar líkamlegrar og andlegrar færni sem rekja má til fötlunar, sjúkdóma eða aldurs geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur. Notaðir eru litlir strætisvagnar sem flestir eru sérbúnir til að taka hjólastóla.
Megintilgangurinn er að notendur ferliþjónustunnar geti stundað vinnu, nám, notið heilbrigðisþjónustu, hæfingar og þjálfunar hvers konar og tómstunda.
Þjónustusvæði ferliþjónustunnar er Akureyri en nær einnig til endurhæfingaraðstöðu í Kristnesi.
Umsóknir um ferliþjónustu skulu berast til búsetudeildar Akureyrarbæjar, Glerárgötu 26, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöðin hér.
Matshópur skipaður af framkvæmdastjóra búsetudeildar afgreiðir umsóknir til skemmri eða lengri tíma.
Búsetudeild metur þörf fyrir þjónustuna en Strætisvagnar Akureyrar sjá um framkvæmd hennar
Plastiðjan Bjarg/Iðjulundur sér um skráningu og símsvörun fyrir ferliþjónustuna. Allar beiðnir um akstur eða breytingar á ferðum þurfa að tilkynnast daginn áður en akstur fer fram í síma 462 5959 fyrir kl. 15.00.
Ferliþjónustan er veitt virka daga kl: 7:30 - 23:30. Um helgar annast leigubifreiðar ferliþjónustu sem niðurgreidd er af Akureyrarbæ.
Ferliþjónusta á virkum dögum er gjaldfrjáls.
Frekari upplýsingar veitir Snæfríð Egilson, iðjuþjálfi, sími 460-1411
