Dagþjónusta og aðstoð vegna atvinnu

Þessi þjónusta heyrir undir Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar.

Í boði er:

Hæfingarstöðin v/ Skógarlund sem er dagþjónusta fyrir fatlað fólk sem býr við verulega fötlun.

Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur (PBI) sem býður upp á starfsþjálfun/- starfsendurhæfingu og ótímabundna ráðningu.

Atvinna með stuðningi (ams) á Fjölskyldudeild veitir aðstoð vegna vinnu á almennum markaði.

Einstaklingum sem leita eftir atvinnutengdri þjónustu er boðið í viðtal þar sem þjónustutilboð eru kynnt og í heimsókn á þjónustustaði áður en þeir fylla út umsókn um þjónustu.

Umsóknareyðublað

Frekari upplýsingar veitir Hulda Steingrímsdóttir, náms- og starfsráðgjafi

Hæfingarstöðin v/Skógarlund

http://skogarlundur.hlutverk.is/

Sími: 462-1755

Dagþjónusta fyrir fatlað fólk sem býr við verulega fötlun og þarf þjálfun, afþreyingu og umönnun.

Upplýsingar veitir Margrét Ríkarðsdóttir, forstöðumaður

 

Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur (PBI)

http://plastidjan.hlutverk.is/

Furuvöllum 1, 600 Akureyri

Sími: 461-4606, netfang: pbi@akureyri, opið 8.00-16.00

Vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu

Starfsþjálfun / starfsendurhæfing og mat á vinnugetu.

Föst störf fyrir einstaklinga sem geta ekki eða óska ekki eftir að fara í vinnu á almennum vinnumarkaði en hafa nokkra starfsgetu.

Upplýsingar veitir Ólöf Elfa Leifsdóttir, forstöðumaður.

 

Atvinna með stuðningi

hulda@akureyri.is

Sími: 460-1430

Á Fjölskyldudeild er þjónusta atvinnu með stuðningi (ams). Þjónustan felur í sér víðtækan stuðning við þá sem hafa skerta vinnugetu vegna andlegrar og / eða líkamlegrar fötlunar. Stuðningurinn felst í aðstoð við að finna starf við hæfi á almennum vinnumarkaði, þjálfun á vinnustað ásamt eftirfylgd.

Upplýsingar veitir Hulda Steingrímsdóttir, náms- og starfsráðgjafi

 

Styrkir vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðra

Sími: 460-1430

Styrkjum vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðra samkv. 27. gr. laga um málefni fatlaðra er úthlutað tvisvar á ári.

Styrkurinn er ætlaður fötluðum einstaklingum á aldrinum 18 - 66 ára.

Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar fást á Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar.

Upplýsingar veitir Hulda Steingrímsdóttir, náms- og starfsráðgjafi