Búsetudeild Akureyrarbæjar býður fólki með fötlun upp á nokkur form búsetu með þjónustu til að mæta
mismunandi þörfum. Mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu því fólk með fötlun er ekki einsleitur
hópur heldur einstaklingar með fjölbreytilegar þarfir. Upp á eftirfarandi búseturform er boðið.
Sambýli er heimili 3-6 einstaklinga, 18 ára og eldri sem ekki geta búið einir og þurfa á þjónustu að halda til að geta haldið heimili. Heimilishald og rekstur er sameiginlegur.
Íbúðir með eða án sameiginlegrar aðstöðu eru íbúðir í fjöleignahúsi, eða íbúðir á tilteknu svæði og sumum fylgir sameiginleg aðstaða. Sameiginleg aðstaða er allt frá litlu rými, sem fyrst og fremst er nýtt sem starfsmannaaðstaða, upp í stórt rými þar sem er sameiginlegt eldhús, setustofa og jafnvel sjúkrabað. Þetta er hentugt búsetuform óháð fötlun þar sem að þjónustan er einstaklingsmiðuð en nálægð íbúanna gerir það að verkum að hægt er að skipuleggja hana þannig að hún nýtist einstaklingunum sem best. Í þessu búsetuformi hafa einstaklingarnir nægjanlegt einkarými og jafnframt greiðan aðgang að þjónustu.
Áfangaheimili fyrir fólk með geðröskun þar sem hægt er að búa tímabundið til að undirbúa sjálfstæða búsetu t.d. eftir dvöl á stofnun. Gerður er samningur um dvöl á heimilinu þar sem sett eru markmið með búsetunni.
Umsóknir um búsetu með þjónustu skulu berast á skrifstofu Búsetudeildar á sérstök eyðublöð sem þar fást. Einnig er hægt að sækja umsóknareyðublöðin hér á netinu. Starfshópur um búsetumál fatlaðra sem skipaður er af framkvæmdatjóra búsetudeildar sér um afgreiðslu umsókna.
| Aðsetur: | Skrifstofa Búsetudeildar, Glerárgötu 26, 2. hæð, 600 Akureyri |
| Sími: | 460-1410 |
| Bréfasími: | 460-1414 |
| Afgreiðslutími: | Alla virka daga kl. 8-16 |
| Tengiliður: | Anna Marit Níelsdóttir, sími 460-1408, netfang: anna@akureyri.is |
