Umsóknir um vistunarmat og dvöl á öldrunarheimili: Forsendur umsóknar um dvöl á öldrunarheimilum er að gert hafi verið vistunarmat, samanber lög um málefni aldraðra. Um er að ræða umsókn fyrir hjúkrunarrými eða dvalarrými.
1. Umsóknareyðublað fyrir hjúkrunarrými: Fylla þarf út umsókn um heimild til vistunarmats þegar sótt er um pláss í hjúkrunarrými á öldrunarstofnun. Hægt er að nálgast umsóknareyðublaðið hér. Nánari upplýsingar um hjúkrunarrými má fá á heimasíðu landlæknisembættisins.
2. Umsóknareyðublað fyrir dvalarrými: Fylla þarf út umsókn um mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými þegar sótt er um pláss í dvalarrými á öldrunarstofnun. Hægt er að nálgast umsóknareyðublaðið hér. Nánari upplýsingar um dvalarrými má fá á heimasíðu Velferðarráðuneytisins.
Umsókn um vistunarmat þarf að berast til:
Heilbrigðisumdæmi Norðurlands
Vistunarmatsnefnd/Matsteymi
Heilsugæslan á Akureyri
Hafnarstræti 99
600 Akureyri
Starfsmaður vistunarmatsnefnda er Rannveig Guðnadóttir hjúkrunarfræðingur með aðsetur á Heilsugæslustöð Akureyrar, Hafnarstræti 99, 4. hæð.
Símatími starfsmanns er mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11:30 - 12:00, sími 460-4669 en einnig er hægt að koma skilaboðum alla daga milli kl. 8.00-16.00 í síma 460-4600 eða með e-pósti rannveig@hak.ak.is
Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu Akureyrarbæjar, sjá hér fyrir ofan.
Líka er mögulegt að fá eyðublöð send í pósti, ef viðkomandi hefur ekki aðgang að tölvu og hringja skal þá á
Búsetudeild s. 460-1410 eða í starfmann vistunarmatsnefnda s. 460-4669.
Ekki er hægt að senda umsóknina rafrænt heldur verður að prenta hana út og koma til viðkomandi vistunarmatsnefnda. Umsóknin felur í sér heimild fyrir vistunarmatsnefndir til að afla nauðsynlegra gagna og upplýsinga, m.a. hjá heilbrigðis- og félagsþjónustu, hafi umsækjandi notið þeirrar þjónustu.
Vistunarmat er einungis gert ef hlutaðeigandi einstaklingur er þegar tilbúinn til búsetu á öldrunarheimili og öll félagsleg og heilsufarsleg þjónustuúrræði til dvalar í heimahúsi hafi verið reynd þar með talið mat á heilsufari og endurhæfingu eftir því sem við á.
Starfmaður vistunarmatsnefndar, heimilislæknar, heimahjúkrun, og upplýsingafulltrúi Búsetudeildar veita frekari upplýsingar sé þess þörf og geta aðstoðað við gerð umsóknar.
Vistunarmatsnefnd Norðurlands skipa: Formaður, Arna Rún Óskarsdóttir öldrunarlæknir, Akureyri, Gunnar M. Sandholt félagsmálastjóri Sauðárkróki og Herdís Klausen hjúkrunarforstjóri Sauðárkróki.
Matsteymi um dvalarrými skipa: Anna Marit Níelsdóttir félagsráðgjafi, Akureyri og Anna Kristrún Sigmarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Húsavík.
