Akureyrarbær rekur líflegt og skemmtilegt starf í þjónustu- og félagsmiðstöðvunum í Víðilundi 22 og Bugðusíðu 1. Þær eru opnar fólki frá 60 ára aldri. Starfsemin er í stöðugri þróun með það að leiðarljósi að skapa fjölbreytni og mæta þörfum þeirra sem þangað sækja.
Opið er alla virka daga frá kl. 9:00-16:00, aðgangur ókeypis.
Boðið er uppá ýmiskonar námskeið, handverk, uppákomur, afþreyingu, hreyfingu og þjónustu. Bæklingur um starfsemi
félagsmiðsstöðvanna liggur frammi á báðum stöðum og í þjónustuanddyri bæjarins.
Bæklinginn má einnig skoða með því að smella HÉR
Gjaldskrá fyrir félagsstarfið: Í Víðilundi og í Bugðusíðu
Í félagsmiðsstöðvunum er starfandi notendaráð sem í sitja 10 fulltrúar. Kosið er í ráðið á hverju vori úr
virkum hópi þeirra sem sækja staðina. Hlutverk notendaráðs er að vera talsmenn fólksins sem nýtir þjónustuna, taka við
ábendingum og tillögum um starfsemina. Einnig hefur ráðið veg og vanda að ýmsum uppákomum í samvinnu við forstöðumann
félagsmiðstöðvanna.
Í Bugðusíðu hefur Félag eldri borgara aðsetur og vinnur í nánu samstarfi við forstöðumann að uppbyggingu og starfsemi félagsmiðstöðvarinnar.
Aðsetur: Félagsmiðstöð við Víðilund 22 og
Félagsmiðstöð við Bugðusíðu 1.
Opnunartími: Alla virka daga kl. 9:00-16:00
Sími: Víðilundur 462 7977 og
Bugðusíðu 462 6055.
Umsjón: Olga Ásrún Stefánsdóttir, forstöðumaður,
netfang, olga@akureyri.is, sími 462-7977.
Stundatöflur: Stundatafla Víðilundar og stundatafla Bugðusíðu
