Fyrir hverja er dagþjónusta?
Í Þjónustumiðstöðinni í Víðilundi 22 er rekin dagþjónusta fyrir eldri borgara alla virka daga þar sem hægt er að taka á móti 16 dagþjónustugestum í einu.
Dagþjónustan er ætluð fólki sem býr í heimahúsum en þarf á stuðningi að halda sem stuðlar að færni til að geta búið sem lengst heima. Markmið þjónustunnar er að gestir geti notið persónulegrar þjónustu í notalegu umhverfi þar sem bæði félagslegum og líkamlegum þörfum þeirra er mætt. Misjafnt er eftir einstaklingum hversu mikið þeir nýta þjónustuna sem getur verið allt frá einum upp í fimm daga í viku.
Smelltu HÉR til að skoða bækling um dagþjónustuna.
Starfsemin er fjölbreytt, svo sem spjall um lífið og tilveruna, söngur, dans, leikir, upplestur, kveðskapur, leikfimi, gönguferðir og fleira.
Opið alla virka daga frá
kl. 9:00-16:00
Akstur
Gestir eru sóttir heim að morgni og síðan ekið heim aftur seinni partinn af leigubílum frá Bifreiðastöð Akureyrar (BSO).
Kostnaður
Gestir dagþjónustu greiða 875 kr. fyrir hverja komu. Innifalið í því er öll þjónusta s.s akstur og fæði. Um hver mánaðarmót er einstaklingum sendur heim gíróseðill fyrir fyrir heildarkomum yfir mánuðinn.
Hvernig er sótt um dagþjónustu?
Umsóknir um dagþjónustu skulu berast til Búsetudeildar Akureyrarbæjar, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Einnig er hægt að nálgast eyðublöðin í þjónustuandyri í Geislagötu 9 og hér á netinu.
Upplýsingar um dagþjónustuna veitir Anna Marit Níelsdóttir á Búsetudeild í síma 460-1410
Forföll
Nauðsynlegt er að gestir dagþjónustunnar boði forföll í síma 462-7977 ef þeir eiga ekki kost á því að koma í dagþjónustu þá daga sem þeir eru skráðir.
Þjónusta á staðnum:
Máltíðir
Boðið er upp á morgunmat, hádegismat og síðdegiskaffi.
Hreyfing
Á hverjum degi er boðið upp á létta leikfimi fyrir gesti. Einnig er farið í gönguferðir þegar aðstæður og veður leyfa.
Hvíld
Hvíldaraðstaða er til staðar fyrir þá sem óska eftir að geta lagt sig yfir daginn.
Bað
Gestum stendur til boða að fá aðstoð við bað einu sinni í viku.
Félagstarf
Dagþjónustugestir hafa tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttu félagsstarfi sem starfrækt er í Víðilundi yfir vetrartímann.
Fótaðgerðarstofa Evu og Eddu
er opin á virkum dögum.
Tímapantanir á milli 9-12 og 13-15 í síma:
892-9020
Hársnyrtistofa Valdísar
er opin alla virka daga eftir pöntunum. Tímapantanir á virkum dögum í síma: 847-5451.
Forstöðumaður:
Olga Ásrún Stefánsdóttir
sími: 462-7977
farsími: 862-7977
netfang: olga@akureyri.is
Deildarstjóri dagþjónustu:
Guðrún Heiða Kristjánsdóttir
sími 462-7977
netfang: ghk@akureyri.is
