UMSÓKN UM ÞÁTTTÖKU Á LISTASUMRI Á AKUREYRI 19. JÚNÍ – 25. ÁGÚST 2012
Listasumar á Akureyri auglýsir eftir umsóknum um þátttöku á sviði sjónlista á Listasumri 2012.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2012.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér skilmálana áður en þeir sækja um.
Nánari upplýsingar síma 466 2609.
Umsóknir og fylgigögn skulu send á neðanskráð póstfang, póststimplað í síðasta lagi 20. janúar 2012:
Listasumar á Akureyri
Pósthólf 115
602 Akureyri
ATHUGIÐ! Vegna fyrirhugaðra breytinga á rekstrarfyrirkomulagi, þar sem Listasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöðin í Listagili (sem hefur séð um framkvæmd Listasumars) sameinast í eina stofnun um næstu áramót, er viðbúið að einhverjar breytingar geti orðið á fyrirkomulaginu. Það mun þá verða kynnt sérstaklega á opinberum vettvangi og umsækjendur sem þegar hafa skilað inn umsóknum verða látnir vita.
