Íþróttahöllin
- Heimilisfang: Skólastíg
- Sími: 462-5077
- Opnunartími: 8:00-23:00 virka daga og 9:00-19:00 um helgar.
Íþróttahöllin veitir gestum góða aðstöðu og þjónustu, hvort sem er til íþróttaiðkunar, félagsstarfs og skemmtana. Í Höllinni fer fram kennsla í íþróttum grunn- og framhaldsskóla ásamt æfingum og keppni íþróttafélaga. Fjölmargar stórhátíðir fara einnig fram í húsinu. Skákfélag Akureyrar, Ljósmyndaklúbbur Akureyrar, Tónlistarskólinn á Akureyri, Íþróttabandalag Akureyrar, Vaxtaræktin og Menntaskólinn á Akureyri hafa fasta aðstöðu í húsinu. Á árinu 2001 fór fram í Íþróttahöllinni alþjóðlegt þing veðurfræðinga sem er eitt stærsta og fjölmennasta þing sem haldið hefur verið á Akureyri.

