Boginn - fjölnota íþróttahús
Boginn er við Skarðshlíð.
Netfang: fusihelga@thorsport.is.
Forstöðumaður: Sigfús Ólafur Helgason, sími 860 2622.
Í Boganum fara fram kappleikir, mót og æfingar (knattspyrna, frjálsar íþróttir og golf) allan ársins hring. Knattspyrnuleikir í húsinu eru um eða yfir 260 á hverju ári. Iðkendur og aðrir gestir eru um 86.000 á ári.
Boginn er opinn öllum þeim sem vilja ganga sér til heilsubótar án endurgjalds frá kl. 8.30–12.00 alla virka daga vikunnar. Hringurinn er 370 metrar og eru yngri sem eldri hvattir til að koma og hreyfa sig í þessu fjölnotahúsi allra Akureyringa. Einnig má geta þess að á Þórsvellinum eru tvær innstu hlaupabrautirnar upphitaðar og þeir sem vilja frekar ganga eða trimma úti undir berum himni geta notfært sér það. Loks má nefna að það er alltaf heitt á könnunni í íþróttahúsinu ef fólk vill fá sér kaffisopa eftir að hafa hreyft sig.

