Auglýsingar og umsóknir

Akureyrarkaupstaður veitir íbúum sínum margvíslega þjónustu sem er yfirleitt ekki auglýst. Helst eru auglýst laus störf, lausar byggingarlóðir og

Flýtilyklar

Auglýsingar og umsóknir

Akureyrarkaupstaður veitir íbúum sínum margvíslega þjónustu sem er yfirleitt ekki auglýst. Helst eru auglýst laus störf, lausar byggingarlóðir og skipulagsbreytingar þegar leitað er álits íbúanna á þeim.

Mörg umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vefnum. Flest eru óvirk pdf-skjöl sem umsækjandi getur prentað út og sent á pappír til viðkomandi stofnunar sveitarfélagsins. Nokkur er hægt að fylla út á vefnum og senda í tölvupósti. Starfsumsóknir eru fylltar út á vefnum og þær skila sér inn í mannauðskerfi þar sem þær eru meðhöndlaðar rafrænt. Stefnan er að sem flestar umsóknir verði þannig.

-2°A 2 m/s

Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.


Stjórnkerfi Akureyrarbæjar er tvískipt eins og önnur opinber stjórnkerfi á Íslandi. Annars vegar er pólitíska kerfið, bæjarstjórn sem lýðræðislega kjörnir bæjarfulltrúar skipa, og fastanefndir en í þeim sitja bæjarfulltrúar og aðrir sem bæjarstjórn kýs. Æðsti yfirmaður pólitíska kerfisins er forseti bæjarstjórnar. Hins vegar er embættismannakerfið, þ.e. ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann.


Hér finnur þú ýmis umsóknareyðublöð og auglýsingar frá Akureyrarbæ. Einnig er hægt að fara inn á íbúavef Akureyrarbæjar til að skoða reikninga og fleira.

 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16

Netföng og símanúmer     |     Laus störf     |     Hafa samband