Starfsmannavefurinn - http://eg.akureyri.is

Starfsmannavefur-myndTekinn hefur verið í notkun gagnvirkur vefur fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar þar sem nálgast má upplýsingar sem skráðar eru um viðkomandi í SAP mannauðskerfi bæjarins.

Á vefnum getur starfsfólk m.a. skoðað launaseðla sína, fengið upplýsingar um stöðu orlofs og sent inn beiðni til viðkomandi yfirmanns um töku orlofs.

Vefurinn býður upp á marga möguleika t.a.m. getur starfsfólk skráð náms- og starfsferil sinn á vefinn sem og uppfært persónuupplýsingar, s.s. breytingar á aðsetri, símanúmeri, bankaupplýsingum o.fl.

Einnig er hægt að skoða reikninga sem gefnir eru út af Akureyrarbæ á viðkomandi starfsmann s.s. leikskólagjöld og fasteignagjöld.

Á forsíðu vefsins birtist daglega listi yfir þá starfsmenn sem eiga afmæli ásamt lista yfir nýtt starfsfólk hjá Akureyarbæ. Auk þess birtast á forsíðunni fréttir af starfsmannahandbókinni á heimasíðu Akureyrarbæjar. Á vefnum má finna starfsmannalista fyrir alla vinnustaði á vegum Akureyrarbæjar.

Sækja þarf um lykilorð á slóðina http://eg.akureyri.is sem síðan er sent í heimabanka viðkomandi starfsmanns.

Hafi starfsmaður ekki aðgang að heimabanka getur viðkomandi nálgast lykilorðið hjá Starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar.

Fyrirspurnum um aðgang að starfsmannavefnum svarar Starfsmannaþjónustan með tölvupósti :  umsokn@akureyri.is  og í síma 460 1060.

Hér má finna leiðbeiningar um hvernig sótt er um lykilorð