Stjórn Akureyrarstofu fer með stjórn menningar-, ferða-, markaðs- og atvinnumála Akureyrarbæjar í umboði bæjarstjórnar. Stjórnin gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnumörkun á þessum sviðum og vinnur að samhæfingu aðgerða. Stjórnin fylgist með því að stofnanir á hennar vegum vinni að settum markmiðum, veiti góða þjónustu og að starfsemi þeirra sé skilvirk og hagkvæm.
Helstu verkefni stjórnar Akureyrarstofu eru:
- að stuðla að öflugu starfi í málaflokkum sínum og hafa um það samstarf við aðila sem starfa á því sviði, m.a. með gerð sérstakra samstarfssamninga þar sem það á við,
- að efla og samræma kynningar- og markaðsmál Akureyrarbæjar,
- að kynna möguleika í atvinnumálum sem bjóðast á Akureyri,
- að hafa eftirlit með rekstri stofnana Akureyrarbæjar sem starfa á verksviði hennar,
- að fylgjast með starfsemi stofnana og félaga er njóta styrkja stjórnar Akureyrarstofu,
- að líta eftir að til séu sem gleggstar upplýsingar um verkefni stjórnarinnar og að upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er séu aðgengilegar á einum stað fyrir bæjarbúa, ferðafólk og aðra,
- að hafa eftirlit með framkvæmd samninga sem gerðir eru við ráðuneyti um samstarf ríkisins og Akureyrarbæjar um málefni á verksviði stjórnarinnar og
- að skapa samráðsvettvang milli bæjarfélagsins og hagsmunaaðila á verkefnasviði stjórnar Akureyrarstofu.
Kjörtímabilið 2010-2014 er stjórn Akureyrarstofu þannig skipuð:
|
|
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
Halla Björk Reynisdóttir (L), formaður |
Sigmundur Ófeigsson (L), varaformaður |
Jón Hjaltason (L) |
Helena Karlsdóttir (S) frá 21/12/2010 |
Hildur Friðriksdóttir (V) frá 8/2/2012 |
Sigrún Stefánsdóttir (S) var aðalmaður í stjórn til 21. desember 2010.
Sóley Björk Stefánsdóttir (V) var aðalmaður í stjórn til 8. febrúar 2012.
Varamenn í stjórn Akureyrarstofu:
Helga Mjöll Oddsdóttir (L) (leyfi frá 22/11/2011 til 30/4/2012)
Hlín Bolladóttir (L)
Þórarinn Stefánsson (L)
Jóhann Jónsson (S)
Guðrún Þórsdóttir (V)
Hildur Tryggvadóttir (L) frá 22/11/2011 til 30/4/2012
Áheyrnarfulltrúar frá 17. janúar 2012:
Matthías Rögnvaldsson (A) og Helgi Vilberg Hermannsson varaáheyrnarfulltrúi.
Sigfús Arnar Karlsson (B) og Regína Helgadóttir varaáheyrnarfulltrúi.
Unnsteinn Jónsson (D) og Sigurður Hermannsson varaáheyrnarfulltrúi.





