Skólanefnd

Skólanefnd fer með málefni leikskólanna og grunnskólanna á Akureyri samkvæmt lögum og reglugerðum um þá, sveitarstjórnarlögum og því sem bæjarstjórn felur henni að öðru leyti. Skólanefnd fer einnig með málefni Tónlistarskólans á Akureyri samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar. Skólanefnd skal sjá um að öll börn á Akureyri njóti lögboðinnar fræðslu. Í störfum sínum ber skólanefnd einnig að sjá um að allir nemendur á skyldunámsstigi hljóti sem besta aðstöðu og jöfnust tækifæri til náms og að skólinn veiti sérhverjum nemanda fræðslu eftir aldri sínum og þroska og í samræmi við gildandi námsskrá á hverjum tíma.

Skólanefnd hefur yfirumsjón með þeirri þjónustu skólanna og því skólatengdu starfi sem veitt er í skólunum utan skólatíma svo sem skólavistun.

Skólanefnd fylgist með og stuðlar að því að skólum sé tryggður aðgangur að sérfræðiþjónustu í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.

Skólanefnd skal sjá um að jafnan sé fyrir hendi fullnægjandi húsnæði og annar útbúnaður.

Skólanefnd gerir tillögu til bæjarstjórnar um skiptingu bæjarins í skólahverfi.

Í skólanefnd sitja kjörtímabilið 2010-2014:

Preben-J-Petursson  Sigríður María Hammer   Helgi Vilberg  Sædís Gunnarsdóttir

Preben Jón Pétursson (L), formaður frá 8/2/2012.

Sigríður María Hammer (L) varaformaður frá 8/2/2012.

Anna Sjöfn Jónasdóttir (L)
frá 22/11/2011

Helgi Vilberg (A)

Sædís Gunnarsdóttir (S) frá 1/10/2012

Herdís R. Arnórsdóttir var aðalmaður í skólanefnd til 22/7/2010.
Sigrún Björk Sigurðardóttir (L) var aðalmaður í skólanefnd frá 22/7/2010 til 22/11/2011.
Sigurveig S. Bergsteinsdóttir (L) var formaður skólanefndar til 8/2/2012.
Preben Jón Pétursson (L) var varaformaður skólanefndar til 8/2/2012.
Logi Már Einarsson (S) var aðalmaður til 1/10/2012.

Varamenn í skólanefnd:
Tryggvi Þór Gunnarsson (L)
Silja Dögg Baldursdóttir (L)
Þorvaldur Sigurðsson (L)
Gísli Aðalsteinsson (A) til 7/6/2011.
Jóhann Gunnar Sigmarsson (A) frá 7/6/2011.
Sædís Gunnarsdóttir (S) til 1/10/2012.
Valdís Anna Jónsdóttir (S) frá 1/10/2012.

Áheyrnarfulltrúar:
Gerður Jónsdóttir (B) og Erlingur Kristjánsson varaáheyrnarfulltrúi frá 17/1/2012.
Hjörtur Narfason (D) og Sigrún Birna Óladóttir varaáheyrnarfulltrúi frá 17/1/2012.
Ingibjörg Salóme Egilsdóttir (V) og Valur Sæmundsson varaáheyrnarfulltrúi frá 7/2/2012 til 29/10/2012.
Kristín Sigfúsdóttir (V) og Valur Sæmundsson varaáheyrnarfulltrúi frá 29/10/2012.
Gerður Jónsdóttir (B) áheyrnarfulltrúi til 20/2/2013.
Áslaug Magnúsdóttir (B) áheyrnarfulltrúi frá 20/2/2013.

Fundargerðir

Samþykkt fyrir skólanefnd