Meginverkefni skipulagsnefndar Akureyrarbæjar eru skipulags- og byggingamál, umhverfisskipulag, lóðaúthlutanir, umferðarmál og landupplýsingakerfi Akureyrar (LUKA). Nefndin hefur hlutverk skipulags- og byggingarnefndar í skilningi 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b., sbr. einnig heimild í 1. mgr. 41. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Skipulagsnefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í skipulags- og byggingarmálum og tekur ákvarðanir á grundvelli skipulags- og byggingarlaga. Hún hefur eftirlit með stefnumörkun og samþykktum í málaflokkum sem undir það heyra, hefur frumkvæði að gerð skipulagstillagna og skipulagsskilmála og gerir tillögur til bæjarstjórnar um skipulagsáætlanir og breytingar á þeim. Nefndin gerir tillögur til bæjarráðs um gjaldtöku vegna gjaldskyldrar starfsemi sem heyrir undir verksvið hennar.
Kjörtímabilið 2010-2014 er skipulagsnefnd þannig skipuð:
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
Helgi Snæbjarnarson (L), formaður |
Haraldur Sveinbjörn Helgason (L), varaformaður |
Sóley Björk Stefánsdóttir (V) |
Auður Jónasdóttir (V) var aðalmaður til 20. desember 2011.
Varamenn í skipulagsnefnd:
Inda Björk Gunnarsdóttir (L)
Vigdís Lovísa Rafnsdóttir (L)
Árni Páll Jóhannsson (L)
Pálmi Gunnarsson (A)
Edward H. Huijbens (V)
Áheyrnarfulltrúar frá 17. janúar 2012:
Tryggvi Már Ingvarsson (B) og Jóhannes Gunnar Bjarnason varaáheyrnarfulltrúi.
Svava Þ. Hjaltalín (D) og Stefán Friðrik Stefánsson varaáheyrnarfulltrúi.
Ragnar Sverrisson (S) og Guðgeir Hallur Heimisson varaáheyrnarfulltrúi.





