Samfélags- og mannréttindaráð

Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar fjallar um jafnréttismál og önnur mannréttindamál, fjölskyldumál, tómstunda­mál og forvarnamál í umboði bæjarstjórnar Akureyrar.

Helstu verkefni samfélags- og mannréttindaráðs eru:

  • eftirlit með framkvæmd fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar,
  • jafnréttismál í bæjarfélaginu skv. 12 gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og önnur mannréttindamál sem eru ekki sérstak­lega falin öðrum,
  • eftirlit með framkvæmd laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002 og áfengislaga nr. 75 frá 1998 að því marki sem lögin leggja skyldur á herðar sveitarfélaga,
  • samstarf við Heilsueflingarráð Akureyrar,
  • rekstur og starfsemi félags- og tómstundamiðstöðva á vegum bæjarins og samskipti bæjarins við félög sem starfa á þessu sviði,
  • starfsemi Menntasmiðjunnar,
  • málefni nýbúa.

Kjörtímabilið 2010-2014 er samfélags- og mannréttindaráð þannig skipað:

 

Hlín Bolladóttir Tryggvi Gunnarsson Heimir Haraldsson Anna Hildur Guðmundsdóttir Guðlaug Kristinsdóttir

Hlín Bolladóttir (L),
formaður

Tryggvi Gunnarsson (L),
varaformaður

Heimir Haraldsson (L)

Anna Hildur Guðmundsdóttir (A)

Guðlaug Kristinsdóttir (B)

 

Varamenn i samfélags- og mannréttindaráði:
Brynjar Davíðsson (L)
Inda Björk Gunnarsdóttir (L)
Helga Eymundsdóttir (L)
Jóhann Gunnar Sigmarsson (A)
Regína Helgadóttir (B)

Áheyrnarfulltrúar frá 17. janúar 2012:
María Hólmfríður Marinósdóttir (D) og Elías Gunnar Þorbjörnsson varaáheyrnarfulltrúi.
Friðbjörg J. Sigurjónsdóttir (S) og Sveinn Arnarsson varaáheyrnarfulltrúi til 2. október 2012.

Áheyrnarfulltrúar frá 7. febrúar 2012:
Guðrún Þórsdóttir (V) og Sigmundur Sigfússon varaáheyrnarfulltrúi.

Áheyrnarfulltrúar frá 2. október 2012:
Friðbjörg J. Sigurjónsdóttir (S) og Ólöf Vala Valgarðsdóttir varaáheyrnarfulltrúi.

Fundargerðir

Samþykkt fyrir samfélags- og mannréttindaráð

Eyðublað fyrir umsóknir um styrki frá samfélags- og mannréttindaráði