Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.
Umhverfisnefnd - 05.06.2012
1.Samgönguáætlun - tillögur
2012050232
Rúna Ásmundsdóttir verkfræðingur hjá Mannviti mætti á fundinn undir þessum lið.
2.Staðardagskrá 21 - endurskoðun 2012
2011050056
3.Lagning raflína í jörð
2012030264
Umhverfisnefnd Akureyrar tekur undir bókun skipulagsnefndar Akureyrar frá 9.maí sl. og áréttar einnig mikilvægi þess að stuðst verði við þemu Staðardagskrár 21. Mikilvægt er að sjónræni umhverfisþátturinn verði ekki einn til viðmiðunar við ákvarðanatöku um að leggja háspennulínur í jörðu heldur fái vistfræðilegir þættir sem og samfélagslegir það vægi sem þeim ber. Að öðru leyti er vísað til greinargerðar sem fylgir með bókuninni.
4.Fuglavernd
2012060057
Umhverfisnefnd vill af gefnu tilefni vekja athygli á að nýr landnemi á Akureyri, stari, er alfriðaður fugl og því alvarlegt brot á fuglaverndarlögum að eyðileggja hreiður og deyða unga hans.
Umhverfisnefnd vill beina því til allra er málið varðar að virða þessa friðun og láta fuglinn ljúka varpi og koma upp ungum og að því loknu þá grípa til fyrirbyggjandi aðgerða með því að loka fyrir aðgengi starans til hreiðurgerðar.
Fundi slitið.
