Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.
Umhverfisnefnd - 14.02.2012
1.Gámaþjónusta Norðurlands - kynning á starfsemi
2012020127
Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar, Ingi Arason tæknifræðingur og Helgi Pálsson rekstrarstjóri kynntu starfsemi félagsins á Hlíðarvöllum við Rangárvelli.
Umhverfisnefnd þakkar þeim félögum kynninguna.
2.Fuglalíf við hundatjörn í Naustaflóa 2012
2012020076
Umræður um hvort láta eigi fara fram fuglatalningu við Hundatjörn í Naustaflóa sem síðast var gerð árið 2010.
Samþykkt að láta fara fram talningu vorið 2012.
3.Glerárdalur og uppland Akureyrar - framtíðarsýn
2012020093
Fulltrúar L-listans í umhverfisnefnd óska eftir að farið verði af stað með umsóknarferli við að gera framtíðarplan um nýtingu Glerárdals með það fyrir augum að þar verði aðgengilegt útivistarsvæði fyrir almenning.
Umhverfisnefnd samþykkir að skipa starfshóp um framtíðarnýtingu Glerárdals og tilnefnir fyrir sitt leyti Huldu Stefánsdóttur, kt. 311258-2069, Jón Inga Cæsarsson, kt. 131252-2269 og Petreu Ósk Sigurðardóttur, kt. 140771-5549, í starfshópinn og óskar eftir því við skipulagsnefnd að hún tilnefni tvo fulltrúa.
Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista óskar bókað að hún fagni þessari ákvörðun L-lista. Petrea telur nauðsynlegt áður en lengra er haldið að gefa hagsmunaaðilum kost á að koma á framfæri sínum sjónarmiðum líkt og í skýrslunni árið 2004.
4.Loftslagsráðstefna í Västerås - 2012
2012010084
Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur og Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála kynntu fyrir nefndarmönnum vinnu sem fram hefur farið við undirbúning þessarar ráðstefnu sem haldin verður í Svíþjóð.
Umhverfisnefnd þakkar starfsmönnum kynninguna.
5.Umhverfisnefnd - heimsóknir
2011050058
Umhverfisnefnd fór í heimsókn á athafnasvæði Gámaþjónustu Norðurlands að Rangárvöllum.
Fundi slitið.
