Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.
Stjórn Akureyrarstofu - 09.02.2012
1.Sinfóníuhljómsveit Norðurlands - samráðsfundur með stjórnendum
2011120063
2.Menningarfélagið Hof ses - samráðsfundur með forsvarsmönnum
2011030188
3.Gjaldskrá almenningsbókasafna - breytingar á lögum um almenningsbókasöfn
2012020060
Þakið var ákveðið kr. 4.000 og er óháð því hversu mikil vanskil fólks eru á bókum og öðrum safnkosti. Þessi regla um hámarkssektir hefur komið mjög niður á tekjuöflun Amtsbókasafnsins á Akureyri.
Stjórn Akureyrarstofu lýsir yfir óánægju með að sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélaga hafi ekki verið virtur þegar breytingar á lögum um almenningsbókasöfn nr. 36/1997 voru samþykktar á Alþingi þann 7. júní 2011.
Við framlagningu frumvarpsins á Alþingi var ekki gert ráð fyrir að lögin kvæðu á um hámark sekta og bóta en svo virðist sem ákveðins misskilnings hafi gætt í meðförum Alþingis um að um innheimtu sekta og bóta færi samkvæmt sömu viðmiðum og um þjónustugjöld. Stjórn Akureyrarstofu telur það miður að fullrúum sveitarfélaganna hafi ekki verið gefinn kostur á að koma fyrir Alþingi til að ræða breytingarnar á frumvarpinu. Engar skýringar eru fyrirliggjandi um hvernig hámarksfjárhæðin var ákveðin.
Það er álit stjórnar Akureyrarstofu að það orki tvímælis að ráðherra sé ætlað að fjalla um sektir og bætur sveitarfélaga, eins og hér um ræðir, í gjaldskrá og reglugerð þar sem það samræmist ekki sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga að ríkisvaldið grípi með þeim hætti inn í fjárhagsáætlanir sveitarfélaga og stofnana þeirra.
Stjórn Akureyrarstofu hvetur Alþingi til að virða sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga og taka umrætt lagaákvæði til endurskoðunar.
4.Endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar
2011020012
5.Starfslaun listamanna 2012 - Menningarsjóður
2012020062
6.Athafna- og nýsköpunarverðlaun stjórnar Akureyrarstofu 2012
2012020063
Fundi slitið.
