Skipulagsnefnd - 23.02.2005

23. febrúar 2005

123. fundur.

Árið 2005, miðvikudaginn 23. febrúar kl. 08:00 kom umhverfisráð saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar, Geislagötu 9.

Mættir voru undirritaðir nefndarmenn: Guðmundur Jóhannsson, Stefán Jónsson, Þórarinn B. Jónsson, Jón Ingi Cæsarsson og Haraldur Sveinbjörn Helgason. Einnig voru mættir eftirtaldir starfsmenn Akureyrarbæjar: Leifur Kristján Þorsteinsson, Bjarni Reykjalín og Ármann Jóhannesson.

Fundarritari var Leifur Kristján Þorsteinsson

 

Fyrir var tekið:

 

1.

Akureyrarhöfn. Aðalskipulag Akureyrar.

SN050010

Erindi dagsett 18.02.2005 þar sem Hörður Blöndal f.h. Hafnasamlags Norðurlands bs.,

kt. 650371-2919, þar sem hann telur að tvö markmið Aðalskipulags Akureyrar 1998-2018 fyrir Akureyrarhöfn stangist á og annað markmiðið verði að víkja fyrir hinu. Annað markmiðið snertir atvinnuuppbyggingu á Akureyri. Hitt snertir varðveislu svæðis, óljóst í hvaða tilgangi en sennilega til útivistar, þrátt fyrir mikla annmarka bæði hvað varðar aðgengi að svæðinu og eins vegna ,,mengunar" frá holræsakerfi bæjarins og fyrri starfsemi.  Óskar hann eftir skýrri niðurstöðu umhverfisráðs í þessu máli og að Aðalskipulagi fyrir Akureyri 1998-2018 verði breytt til samræmis við þá niðurstöðu.

Umhverfisráð felur formanni ráðsins, sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og skipulags- og byggingafulltrúa að ræða við hafnarstjóra og formann Hafnasamlags Norðurlands.

 

2.

Borgarsíða 29. Breyting á byggingarskilmálum.

BN050005

Erindi dagsett 05.01.2005 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Bjarna Gnýs Hjarðar,

kt. 030964-5789, sækir um byggingarleyfi og breytingar á áður samþykktum byggingar-skilmálum, breikkun á byggingarreit og að bílgeymsla verði innbyggð í hús en ekki stakstæð var sent í grenndarkynningu þann 19.01.2005 og lauk henni þann 09.02.2005. Engar athugasemdir bárust.

Umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki deiliskipulagsbreytinguna og feli umhverfisdeild að annast gildistökuferlið.

 

3.

Hraungerði 1. Breyting á deiliskipulagi.

SN040054

Erindi dagsett 14.12.2004 þar sem Sveinbjörn Sveinbjörnsson, kt. 160350-3939, sækir um frávik frá skipulagsskilmálum fyrir Hraungerði 1, sem fela í sér aukinn þakhalla var sent í grenndarkynningu þann 14.01.2005 og lauk henni þann 18.02.2005. Engar athugasemdir bárust.

Umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki deiliskipulagsbreytinguna og feli umhverfisdeild að annast gildistökuferlið.

 

4.

Síðubraut. Byggingarland.

SN050007

Erindi dagsett 09.02.2005 þar sem Baldvin Valdemarsson f.h. Valbæjar ehf., kt. 610289-1429, óskar eftir vilyrði fyrir 12-15 þúsund fermetra lóð til að byggja verslunar- og þjónustuhús ásamt aðstöðu fyrir sjálfsafgreiðslubensínstöð.  Óskað er eftir landsvæði vestan Hörgárbrautar og norðan Síðubrautar.

Umhverfisráð tekur jákvætt í erindið og felur umhverfisdeild að láta gera deiliskipulag af umræddu svæði þar sem tekið verði tillit til sjónarmiða umsækjanda.

 

5.

Strandgata,  Átak. Lóðarstækkun.

SN050008

Erindi dagsett 14.02.2005 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Átaks heilsuræktar ehf.,

kt. 600603-3020, óskar eftir lóðarstækkun til þess að byggja við núverandi húsnæði til austurs á landfyllingu við Strandgötu.  Meðfylgjandi eru tillöguteikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.

Umhverfisráð heimilar umsækjanda að gera tillögu að breyttu deiliskipulagi svæðisins í samráði við umhverfisdeild.  Tillagan verði lögð fyrir ráðið til endanlegrar afgreiðslu.

 

6.

Gránufélagsgata 47. Lóðarstækkun.

BN050059

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Halldór Brynjarsson f.h. Gránuhússins ehf., kt. 660595-3769, sækir um að endurnýja umsókn um stækkun á lóð Gránufélagsgötu 47 til norðurs. Meðfylgjandi er fyrri umsókn BN020292.

Umhverfisráð felur umhverfisdeild að grenndarkynna tillögu að nýjum lóðarmörkum skv.

1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.73/1997

 

7.

Fossagil 2. Lóðarumsókn.

BN050037

Erindi dagsett 10.02.2005 þar sem Hafsteinn Sveinsson, kt. 060959-3829, sækir um einbýlishúsalóðina nr. 2 við Fossagil. Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka.

Umhverfisráð samþykkir erindið. Almennir úthlutunarskilmálar  og skipulags- og byggingarskilmálar gilda.

 

8.

Fossagil 2. Lóðarumsókn.

BN050060

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Gunnlaugur Ingólfsson f.h. Timbru ehf., kt. 620199-3039, sækir um einbýlishúsalóðina nr. 2. við Fossagil.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka.

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu þar sem lóðin var veitt öðrum sem var í forgangi.

 

9.

Drangshlíð. Lóðarumsókn.

BN050050

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Magnús Már Lárusson og Jóhann Stefánsson f.h. Valmanna ehf., kt. 420304-2850, sækja um lóð austan Drangshlíðar fyrir hús á einni hæð.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Landsbankanum.

Umhverfisráð hafnar erindinu með vísan til verkefnisins ,,þétting byggðar" þar sem þetta svæði hefur m.a. komið til álita en málið er ennþá í vinnslu.

 

10.

Fjölnisgata 6a. Lóðarumsókn.

BN050027

Erindi dagsett 01.02.2005 þar sem Magnús Guðjónsson f.h. Fjölnis ehf., kt. 530289-2069, sækir um lóð nr. 6a við Fjölnisgötu.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu Landsbanka Íslands.

Umhverfisráð samþykkir að veita umsækjanda lóðina.  Skipulags- og byggingarskilmálar gilda.  Byggingarfrestur er til 1. september 2005.

 

11.

Ásatún 2-14. Lóðarumsókn.

BN050065

Erindi dagsett 16.02.2005 þar sem Ómar Bogason f.h. HM Bygginga ehf., kt. 560603-2580, sækir um lóð nr. 2-14 við Ásatún. Meðfylgjandi er lánsloforð frá Íbúðalánasjóði og samningur við Festi ehf., kt. 600396-2859.

Umhverfisráð samþykkir að veita umsækjanda lóðina. Almennir úthlutunarskilmálar og skipulags- og byggingarskilmálar gilda.

 

12.

Lækjartún 8-14. Lóðarumsókn.

BN050066

Erindi dagsett 16.02.2005 þar sem Ómar Bogason f.h. HM Bygginga ehf., kt. 560603-2580, sækir um lóð nr. 8-14 við Lækjartún.  Meðfylgjandi er lánsloforð frá Íbúðalánasjóði og samningar við Festi ehf., kt. 600396-2859.

Umhverfisráð hafnar erindinu þar sem umsækjandi hefur fengið lóðina Ásatún 2-14.

 

13.

Kaupvangsstræti, kartöflugeymsla. Lóðarumsókn.

 

BN050012

Erindi dagsett 10.02.2005 þar sem Logi Einarsson f.h. Kollgátu ehf., kt 581203-2090, sækir um lóðina undir kartöflugeyslunni við Kaupvangsstræti.  Meðfylgjandi er afrit af kaupsamningi milli Fasteigna Akureyrarbæjar og Kollgátu ehf. og SS Byggis ehf.  

Umhverfisráð samþykkir að veita umsækjanda lóðina.  Skipulags- og byggingarskilmálar gilda.

 

14.

Hólatún 12-20. Lóðarumsókn.

BN050069

Eindi dagsett 18.02.2005 þar sem Örn Jóhannsson f.h. Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir

um lóð nr. 12-20 við Hólatún.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka.

Umhverfisráð samþykkir að veita umsækjanda lóðina. Almennir úthlutunarskilmálar og skipulags- og byggingarskilmálar gilda.

 

15.

Hólatún 2-8. Lóðarumsókn.

BN050070

Erindi dagsett 18.02.2005 þar sem Örn Jóhannsson f.h. Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir

um lóð nr. 2-8 við Hólatún.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka.

Umhverfisráð samþykkir að veita umsækjanda lóðina. Almennir úthlutunarskilmálar og skipulags- og byggingarskilmálar gilda.

 

16.

Urðargil 1-3. Tillöguteikningar.

BN050073

Erindi dagsett 21.02.2005 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Timbru ehf., kt. 620199-3039,

sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 1-3 við Urðargil.  Meðfylgjandi eru tillöguteikningar eftir Þröst Sigurðsson dagsettar 15.02.2005.

Umhverfisráð samþykkir að senda erindið í grenndarkynningu.

 

17.

Naustahverfi 2 áf. Reitur A. Umsókn um byggingarrétt.

BN050045

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Örn Jóhannsson f.h. Hyrnu ehf., kt. 710594-2019 sækir

um reit A í Naustahverfi 2. áf.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka og yfirlit um fyrirtækið.  

Umhverfisráð samþykkir erindið. Úthlutunarskilmálar gilda.

 

18.

Naustahverfi 2. áf. Reitur D. Umsókn um byggingarrétt.

BN050054

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Daníel Hafsteinsson f.h. Búmanna, kt. 660499-2299, sækir um reit D í Naustahverfi 2. áf.

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar

sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

19.

Naustahverfi 2. áf. Reitur D (G). Umsókn um byggingarrétt.

BN050056

Erindi dagsett 16.02.2005 þar sem Björn Friðþjófsson f.h. Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um reit D í Naustahverfi 2. áf. Til vara reitur G.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Sparisjóði Svarfdæla og yfirlit um stöðu fyrirtækisins.

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar

sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

20.

Naustahverfi 2. áf. Reitur D (G, F). Umsókn um byggingarrétt.

BN050052

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Magnús Guðjónsson f.h. Fjölnis ehf., kt. 530289-2069, sækir um reit D í Naustahverfi 2. áf.  Til vara reitur G og reitur F.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Landsbankanum.

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

21.

Naustahverfi 2. áf. Reitur F. Umsókn um byggingarrétt.

BN050055

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Daníel Hafsteinsson f.h. Búmanna, kt. 660499-2299, sækir um reit F í Naustahverfi 2. áf.

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

22.

Naustahverfi 2. áf. Reitur F. Umsókn um byggingarrétt.

BN050057

Erindi dagsett 16.02.2005 þar sem Jóhannes Sigurðsson f.h. Gullstrandar ehf., kt. 660199-2179, sækir um reit F í Naustahverfi 2. áf.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Landsbankanum og yfirlit yfir stöðu fyrirtækisins.

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

23.

Naustahverfi 2 áf. Reitur F (G). Umsókn um byggingarrétt.

BN050039

Erindi dagsett 11.02.2005 þar sem Jóhann Þórðarson f.h. Trétaks ehf., kt. 551087-1239, sækir um reit F í Naustahverfi 2. áfanga. Til vara reitur G.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá KB Banka.

Umhverfisráð samþykkir að úthluta umsækjanda reit F. Úthlutunarskilmálar gilda.

 

24.

Naustahverfi 2. áf. Reitur G. Umsókn um byggingarrétt.

BN050046

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Örn Jóhannsson f.h. Hyrnu ehf., kt. 710594-2019 sækir um reit G í Naustahverfi 2. áf.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka og yfirlit um fyrirtækið.  

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

25.

Naustahverfi 2. áf. Reitur G. Umsókn um byggingarrétt.

BN050053

Erindi dagsett 15.02.205 þar sem Páll Alfreðsson f.h. P. Alfreðssonar ehf., kt. 631296-2039, sækir um reit G í Naustahverfi 2. áf.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka  og stöðu fyrirtækisins, einnig hugmynd að skipulagi á reit G. 

Umhverfisráð samþykkir erindið. Úthlutunarskilmálar gilda.

 

26.

Naustahverfi 2. áf. Reitur G. Umsókn um byggingarrétt.

BN050062

Erindi dagsett 16.02.2005 þar sem Hafsteinn Sveinsson f.h. Karólínu ehf., kt. 660795-2439, Þorsteinn Jökull Vilhjálmsson, kt. 281247-3529 og Sigurður Jónas Baldursson f.h. SJBald ehf., kt. 690403-2420, sækja saman um reit G í Naustahverfi 2. áf.  Meðfylgjandi eru staðfestingar á greiðslugetu frá KB Banka og Íslandsbanka, einnig yfirlit um stöðu framkvæmda hjá fyrirtækjunum.

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

27.

Naustahverfi 2. áf. Reitur G (E). Umsókn um byggingarrétt.

BN050061

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Gunnlaugur Ingólfsson f.h. Timbru ehf., kt. 620199-3039, sækir um reit G í Naustahverfi 2. áf.  Til vara reitur E.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka.

Umhverfisráð samþykkir að úthluta umsækjanda reit E. Úthlutunarskilmálar gilda.

 

28.

Naustahverfi 2. áf. Reitur D. Umsókn um byggingarrétt.

BN050058

Erindi dagsett 16.02.2005 þar sem Jóhannes Sigurðsson f.h. Gullstrandar ehf., kt. 660199-2179, sækir um reit D í Naustahverfi 2. áf.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Landsbankanum og yfirlit yfir stöðu fyrirtækisins.

Umhverfisráð samþykkir erindið. Úthlutunarskilmálar gilda.

 

29.

Naustahverfi 2. áf. Reitur D. Umsókn um byggingarrétt.

BN050047

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Örn Jóhannsson f.h. Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um reit D í Naustahverfi 2. áf.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka og yfirlit um fyrirtækið.  

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

30.

Naustahverfi 2. áf. Reitur G. Umsókn um byggingarrétt.

BN050049

Erindi dagsett 15.02.2005 þar sem Heiðar Jónsson f.h. Trésmiðju Sveins Heiðars ehf.,

kt. 500189-1509, sækir um reit G í Naustahverfi 2. áf.   Meðfylgjandi er yfirlit  yfir stöðu fyrirtækisins og staðfesting á greiðslugetu frá KB Banka.

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

31.

Naustahverfi 2. áf. Reitur A (D). Umsókn um byggingarrétt.

BN050063

Erindi dagsett 16.02.2005 þar sem Sigurgeir Arngrímsson f.h. Virknis ehf., kt. 620301-3530, sækir um reit A í Naustahverfi 2. áf.  Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá KB Banka, einnig yfirlit yfir stöðu fyrirtækisins og hugmynd að skipulagi reitsins.

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

32.

Naustahverfi 2. áf. Reitur A (B). Umsókn um byggingarrétt.

BN050064

Erindi dagsett 16.02.205 þar sem Haraldur Árnason f.h. Festis ehf., kt. 561202-3030, sækir um reit A í Naustahverfi 2. áf.  Til vara reit B.  Meðfylgjandi er lánsloforð frá Íbúðalánasjóði og samkomulag við MH Byggingar ehf., kt. 560603-2580.

Umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu en vísar til bókunar í 35. lið þar sem umhverfisráð óskar eftir því við bæjarráð að framkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt.

 

33.

Kjarnagata. Lóðarumsókn.

BN050068

Erindi dagsett 16.02.2005 þar sem Ómar Bogason f.h. HM Bygginga ehf., og Haraldur Árnason f.h. Festis ehf., kt. 600396-2859, óska eftir viðræðum við umhverfisráð vegna lóða austan reita merkta A og B í Naustahverfi.

Umhverfisráð tekur jákvætt í erindið. Ráðið felur skipulags- og byggingafulltrúa að ræða við bréfritara.

 

34.

Almennir úthlutunarskilmálar.

BN030518

Umhverfisráð samþykkir vegna mikillar eftirspurnar í íbúðarhúsalóðir að almennum úthlutunarskilmálum verði breytt þannig að ekki verður veitt framlenging á byggingarfrestum frá og með 1. apríl 2005.

 

35.

Naustahverfi 2. áfangi. Framkvæmdir.

BN050077

Vegna mikillar eftirspurnar eftir lóðum beinir umhverfisráð því til bæjarráðs að gatnaframkvæmdum í 2. áfanga Naustahverfis verði flýtt svo og gatnaframkvæmdum við Ægisnes (Krossaneshaga).

 

36.

Afgreiðslur skipulags- og byggingafulltrúa. Fundargerð dags. 9. febrúar 2005.

UR050007

Skipulags- og byggingafulltrúi lagði fram til kynningar fundargerð yfir fullnaðarafgreiðslur erinda.  Fundargerðin er í 6 liðum.

Lagt fram.

 

37.

Afgreiðslur skipulags- og byggingafulltrúa. Fundargerð dags. 16. febrúar 2005.

UR050008

Skipulags- og byggingafulltrúi lagði fram til kynningar fundargerð yfir fullnaðarafgreiðslur erinda.  Fundargerðin er í 9 liðum.

Lagt fram.

 

 

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:30.