Búsetudeild

Búsetudeild er hluti af félagsþjónustu Akureyrarbæjar og veitir íbúum bæjarins ýmiss konar búsetuþjónustu.
Ennfremur sinnir deildin þjónustu við íbúa nokkurra annarra sveitarfélaga samkvæmt samningum þar að lútandi.

Með búsetuþjónustu er átt við þjónustu sem miðar að því að styðja við sjálfstæða búsetu fólks og/eða skapa fólki aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi á heimili sínu þrátt fyrir skerðingu á færni og breytingu á högum sem kunna að verða samfara hækkandi aldri, fötlun eða veikindum.

Undir deildina heyra:

Aðsetur Búsetudeildar er í Glerárgötu 26, 2. hæð, 600 Akureyri
Afgreiðslutími er alla virka daga kl. 8:00-16:00.

Sími 460-1410
(Bréfasími/Faxnúmer 460-1414)

Framkvæmdastjóri er Soffía Lárusdóttir, soffia@akureyri.is
Skrifstofustjóri er Margrét Alfreðsdóttir, margret@akureyri

Skrifstofa deildarinnar annast yfirstjórn, áætlanagerð og starfsmannahald fyrir einstaka þjónustuþætti.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -


Viðbragsáætlun búsetudeildar vegna heimsfaraldar innflúensu