Inga Þöll
Þórgnýsdóttir er bæjarlögmaður. Á verksviði bæjarlögmanns er að tryggja að stjórnsýsla sveitarfélagsins
sé lögum samkvæmt, ýmiss konar samningsgerð, umsjón með tryggingamálum, fyrirsvar í dómsmálum og ýmis
ráðgjöf til deilda, stofnana og nefnda bæjarins.
Inga Þöll er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og með embættispróf í lögfræði frá
Háskóla Íslands 1991 en héraðsdómslögmannsréttindi fékk hún 1994. Hún tók við starfi
bæjarlögmanns 1. apríl 2002 en hafði áður rekið eigin lögmannsstofu á Akureyri.
Brauðmolar
Bæjarlögmaður
Valmynd
- Forsíða
- Þjónusta
- Stjórnkerfið
- Íbúagátt
+5.3°NNV 4 m/s
Leit
Valmynd
Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.
Stjórnkerfi Akureyrarbæjar er tvískipt eins og önnur opinber stjórnkerfi á Íslandi. Annars vegar er pólitíska kerfið, bæjarstjórn sem lýðræðislega kjörnir bæjarfulltrúar skipa, og fastanefndir en í þeim sitja bæjarfulltrúar og aðrir sem bæjarstjórn kýs. Æðsti yfirmaður pólitíska kerfisins er forseti bæjarstjórnar. Hins vegar er embættismannakerfið, þ.e. ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann.
Hér finnur þú ýmis umsóknareyðublöð og auglýsingar frá Akureyrarbæ. Einnig er hægt að fara inn á íbúavef Akureyrarbæjar til að skoða reikninga og fleira.