Samþykkt um stjórn Akureyrarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar

I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar.

1. gr.

     Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar er skipuð ellefu bæjarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

     Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

     Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins, að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

     Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins og vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum bæjarbúa.

5. gr.

     Bæjarstjórn skal annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum. 

6. gr.

     Meðal annarra verkefna bæjarstjórnar er:

  1. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga bæjarfélagsins og ráða löggilta endurskoðendur eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu, stofnunum þess og fyrirtækjum.
  2. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins og ráða bæjarstjóra, sbr. 63. gr.
  3. Að móta stefnu fyrir starfsemi bæjarstjórnar, sviða, deilda og stofnana, setja starfsemi bæjarins reglur, m.a. um ábyrgðarmörk nefnda, kjörinna fulltrúa og embættismanna, gjaldskrár o.þ.h. eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  4. Að gera fjárhagsáætlanir og starfsáætlanir sem eru stefnumótandi fyrir svið, deildir og stofnanir.
  5. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga og VII. kafla samþykktar þessarar. Bæjarstjórn tekur ákvarðanir um verulegar skuldbindingar bæjarfélagsins til lengri tíma.

 

II. KAFLI

Um fundarsköp bæjarstjórnar.

7. gr.

     Bæjarstjórn heldur reglulega  fundi tvisvar í hverjum mánuði, að jafnaði fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Reglulegir bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.00. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

     Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati bæjarstjóra eða forseta bæjarstjórnar og skylt er að halda aukafund ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess.

8. gr.

     Sá kjörinn fulltrúi í bæjarstjórninni sem á að baki lengstu setu í bæjarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, sbr. 2. gr. samþykktar þessarar, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.

     Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í bæjarstjórn átt jafnlengi setu í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.

9. gr.

     Bæjarstjóri boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það, sbr. þó 8. gr.

10. gr.

     Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miða skal við að sem flestir íbúar bæjarins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.

     Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur hún ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum bæjarins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.

11. gr.

     Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði.

     Á dagskrá bæjarstjórnar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu forseta bæjarstjórnar og varaforseta, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og ráðningu bæjarstjóra og annarra æðstu stjórnenda bæjarins, sbr. 61. og 63. gr.
  2. Mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar, sbr. 6. gr., og bæjarstjóri, bæjarfulltrúar eða nefndir vilja taka á dagskrá. Óski bæjarfulltrúi eftir að taka mál á dagskrá skal hann tilkynna bæjarstjóra það skriflega eða með rafrænum hætti með tillögu fyrir kl. 11.00 föstudaginn fyrir bæjarstjórnar­fund. Nefnd sem vill vísa máli til bæjarstjórnar skal hafa skilað samþykkt um það í frágenginni fundargerð fyrir kl. 13.00 á fimmtudegi fyrir bæjarstjórnar­fund.
  3. Fyrirspurnir frá bæjarfulltrúum sem lagðar hafa verið fram með öðrum dagskrár­málum sbr. 2. tölulið.
  4. Fundargerðir nefnda til kynningar.

     Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða nefnda, tillagna og annarra gagna sem bæjarstjóri telur nauðsynleg. Áður en skilafrestur tillagna um dagskrármál skv. 2. tölul. rennur út skal birta bæjarfulltrúum með rafrænum hætti skrá yfir fundi nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins, sbr. 59. gr., sem haldnir hafa verið frá því að skilafrestur rann síðast út. Skoðast skráin sem viðauki við dagskrá, sbr. 3. tölul.

12. gr.

     Bæjarstjóri skal hafa sent bæjarfulltrúum fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund. Aukafundir skulu á sama hátt boðaðir með a.m.k. sólarhrings fyrirvara.

13. gr.

     Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera aðgengileg bæjarbúum í þjónustuanddyri bæjarskrifstofanna og á vefsíðu bæjarins eða með öðrum hætti sem bæjarstjórn ákveður.

 14. gr.

     Sá bæjarfulltrúi er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum uns forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn.

     Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs í senn. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný.

     Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórninni. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði ræður hlutkesti milli hverra tveggja þeirra skal kjósa. Verður sá rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fleiri atkvæði fær þótt hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða kosningu.

     Forseti bæjarstjórnar stjórnar kjöri tveggja varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3. mgr. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti.

     Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til samgönguráðuneytisins þegar að því loknu.

     Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti forsetastörfum nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

     Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils hans.

15. gr.

     Bæjarstjórn kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og forsetakosning fer fram. Skrifarar skulu telja atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn.

16. gr.

     Bæjarstjórnarfundi skal halda í heyranda hljóði og er almenningi heimill aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.

     Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn.

     Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.

17. gr.

     Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarfulltrúa er á fundi. Bæjarstjórn getur enga bindandi ályktun gert nema fundur sé lögmætur.

18. gr.

     Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans og stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók og að allar ályktanir og samþykktir séu nákvæmlega bókaðar.

     Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum.

19. gr.

     Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað.

     Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál sem hefur ekki verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa samþykkja slík afbrigði.

 20. gr.

     Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Fjárhagsáætlanir bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
  2. Ársreikninga bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
  3. Samþykktir og reglugerðir sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið, sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir.
  5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.

21. gr.

     Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

     Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra og boða varamann sinn á fund. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast, sbr. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

     Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, en ekki hefur hann atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn bæjarfulltrúi.

     Bæjarstjórn getur heimilað að einstaklingur utan bæjarstjórnar taki til máls á bæjarstjórnarfundi.

22. gr.

     Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við umræður og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt megi ætla að afstaða hans mótist að einhverju leyti af því. Sama á við sé hann fyrirsvarsmaður aðila sem málið varðar með sambærilegum hætti.

     Bæjarfulltrúi er ekki vanhæfur þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

     Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn bæjarins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga bæjarins.

     Bæjarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúi sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

     Bæjarfulltrúi, sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

23. gr.

     Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúi sem vill taka til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.

24. gr.

     Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta og/eða fundarins.

     Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður má þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

     Bæjarfulltrúi má ekki lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta.

25. gr.

     Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýði bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta ef nauðsyn krefur.

26. gr.

     Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

27. gr.

     Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.

28. gr.

     Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella, vísa því frá bæjarstjórn eða til afgreiðslu bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

29. gr.

     Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja afgreiðslu máls að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.

     Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál afgreitt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

     Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef einhver bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu. Heimilt er bæjarfulltrúa að gera stutta grein fyrir atkvæði sínu.

     Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.

30. gr.

     Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.

     Ef jafnmörg atkvæði eru með máli og á móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti. Kosningar sem fram fara í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d?Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitastjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal hún fara fram eins og við forsetakjör.

31. gr.

     Bæjarstjórn skal skipa sérstakan fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast færslu gerðabókar og ritun fundargerða.

     Í gerðabók bæjarstjórnar skal skrá númer hvers fundar, hvar og hvenær hann er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók dagskrá fundar, upphafstíma fundar, fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerðar. Viðstaddir bæjarfulltrúar skulu rita nöfn sín í gerðabók við slit fundar.

     Fundargerðir bæjarstjórnar skal skrá í tölvu. Í fundargerð skal getið, hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila mála og meginefni og hvernig þau eru afgreidd. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst.

     Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál í sérstaka gerðabók.

     Í lok fundarins skal fundargerð prentuð, lesin upp og undirrituð af fundarmönnum. Einnig skulu forseti og skrifarar setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerðar og blaðsíðurnar tölusettar í áframhaldandi töluröð frá síðasta fundi. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.

     Bæjarfulltrúi sem vill gera athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.

     Umræður á bæjarstjórnarfundum skulu hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Bæjarstjórn skal setja um það nánari reglur.

 

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.

32. gr.

     Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum bæjarins. Hver bæjarfulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar, svo sem forsetastörf. Þó getur sá sem hefur verið forseti eða setið í bæjarráði eða annarri nefnd eitt kjörtímabil eða lengur skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

33. gr.

     Bæjarfulltrúa ber að gegna bæjarfulltrúastörfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarins, en í störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

34. gr.

     Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.

     Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarfulltrúa hefur tekið þátt í henni.

Bæjarfulltrúi á rétt á að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skv. 3. tölul. 11. gr.

35. gr.

     Aðalmenn í bæjarstjórn eiga óhindraðan aðgang að bókum og skjölum bæjarins og einnig að stofnunum og fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til að afla upplýsinga vegna starfa sinna.

36. gr.

     Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í bæjarstjórn.

37. gr.

     Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarfulltrúi lætur af þeim störfum.

38. gr.

     Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn vegna óhæfilegs álags og getur bæjarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

     Missi fulltrúi í bæjarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

     Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal bæjarstjórn þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

39. gr.

     Kjörnum fulltrúum ber greiðsla úr bæjarsjóði fyrir störf sín í þágu bæjarfélagsins samkvæmt reglum sem bæjarstjórn setur.

40. gr.

     Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.

41. gr.

     Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn sem taka sæti í bæjarstjórn.

 

IV. KAFLI

Bæjarráð.

42. gr.

     Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa fimm bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og fimm til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann. Kosningar í bæjarráð skulu vera leynilegar bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð.

     Í sumarleyfi bæjarstjórnar má kalla aðra frambjóðendur af sama framboðslista sem varamenn í þeirri röð sem þeir skipuðu listann.

43. gr.

     Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.

     Framboðslisti sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í bæjarráði má tilnefna bæjarfulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Áheyrnarfulltrúi má tilnefna varamann í forföllum sínum. Ákvæði um launakjör, sbr. 39. gr., eiga einnig við áheyrnarfulltrúa.

44. gr.

     Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.

     Bæjarráð skal ákveða og auglýsa fastan fundartíma í upphafi hvers kjörtímabils bæjarstjórnar.

 45. gr.

     Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund tilkynnir hann forföll til bæjarstjóra og boðar varamann sinn.

46. gr.

     Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs. Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmaður óskar þess.

     Starfsmaður bæjarráðs annast fundarritun. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundagerða bæjarstjórnar, sbr. 31. gr.

     Bæjarráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum.

47. gr.

     Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með fjármálastjórn bæjarins að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur umsjón með undirbúningi árlegrar fjárhags­áætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Bæjarráð sér um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu, svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um. Bæjarráð hefur umsjón með framkvæmd og fjárhagsramma verkefna sem tengjast stuðningi við atvinnulíf bæjarfélagsins, frumkvöðla og fyrirtæki. Þá fer bæjarráð með yfirumsjón kjaramála bæjarstarfsmanna og skipar fulltrúa í kjaranefndir.

     Bæjarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála, sbr. 54. gr.

     Bæjarráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála skv. 57. gr.

48. gr.

     Skylt er starfsmönnum bæjarins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað. Heimilt er að boða aðra á fundi bæjarráðs til viðræðna um tiltekin mál.

 

V.KAFLI

Nefndir, ráð og stjórnir.

49. gr.

     Bæjarstjórn kýs fulltrúa, aðalmenn og varamenn, í nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar og kýs formenn og varaformenn. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá.

     Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.

50. gr.

     Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Geti nefndarmaður ekki sótt fund, tilkynnir hann forföll til formanns og boðar varamann. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr bænum, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

     Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

51. gr.

     Nefndarfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum.

     Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

52. gr.

     Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II.?IV. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum eftir því sem við á.

 53. gr.

     Bæjarstjórn staðfestir erindisbréf fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem kveðið er á um hlutverk, valdsvið og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjarstjórnar.

54. gr.

     Bæjarráði og öðrum kjörnum nefndum sem taldar eru upp í 1. - 10. tölul. b-liðar 59. gr. er heimilt að afgreiða á grundvelli erindisbréfs skv. 53. gr., án staðfestingar bæjarstjórnar, mál á verksviði þeirra ef:

  1. lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því,
  2. þau varða ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun, og
  3. þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.

55. gr.

     Bæjarstjórn er heimilt að fela embættismönnum fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 54. gr. Heimild þessi skal sett í erindisbréf viðkomandi nefndar og embættismanna sem málið heyrir undir og sem staðfest er af bæjarstjórn.

     Bæjarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu embættismanna en viðkomandi nefndir hafa eftirlit með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra.

     Embættismanni er alltaf heimilt að vísa ákvörðun skv. 1. mgr. til viðkomandi nefndar til fullnaðarafgreiðslu.

56. gr.

     Mál sem embættismanni er heimilt að afgreiða eða sem hefur fengið afgreiðslu í nefnd getur komið til ákvörðunar bæjarstjórnar með tvennum hætti:

  1. Nefnd er skylt að vísa afgreiðslu máls til bæjarstjórnar ef a.m.k. þriðjungur atkvæðisbærra fundarmanna óskar eftir því með bókun á nefndarfundi.
  2. Bæjarfulltrúi getur með formlegri og rökstuddri tillögu óskað þess að ákvörðun nefndar eða embættismanns, sbr. 54. og 55. gr., verði tekin á dagskrá bæjarstjórnar. Þetta gildir þó ekki ef ákvörðun hefur verið tilkynnt málsaðila og hagsmunir hans mæla gegn því að mál verði tekið upp að nýju.

57. gr.

     Aðili máls á rétt á að mál hans sé tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess hjá bæjarstjórn, nefnd eða embættismanni ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

     Beiðni um endurupptöku máls skal beina til bæjarráðs og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila er tilkynnt um afgreiðslu.

     Ef endurupptökuskilyrði eru fyrir hendi tekur bæjarráð ákvörðun um málsmeðferð.

58. gr.

     Nefndir, ráð og stjórnir skulu halda gerðabækur. Starfsmaður nefndar annast fundarritun. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 31. gr.

 59. gr.

     Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir. Bæjarstjórn kýs formenn og varaformenn nefnda skv. A- og B-lið:

A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert.

  1. Bæjarráð. Fimm aðalfulltrúar í bæjarstjórn og fimm til vara skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

B. Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að loknum bæjarstjórnarkosningum skulu eftirtaldar nefndir kosnar:

  1. Félagsmálaráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Jafnframt fer félagsmálaráð með stjórn málefna aldraðra. Þá sér ráðið auk þess um framkvæmd laga um húsnæðismál nr. 44/1998, önnur en fjárhagsmál sem heyra undir bæjarráð.
  2. Framkvæmdaráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Nefndin fer með stjórn Fasteigna Akureyrarkaupstaðar, málefni Slökkviliðs Akureyrar og  Strætisvagna Akureyrar og málefni laga um búfjárhald o.fl. nr. 103/2002.
  3. Íþróttaráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Nefndin fer með málefni íþrótta og hollrar hreyfingar. Þá fer nefndin með málefni íþróttamannvirkja.
  4. Samfélags- og mannréttindaráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Nefndin fer með framkvæmd laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 en að auki sér nefndin um framkvæmd fjölskyldustefnu Akureyrarkaupstaðar, vinnu að forvörnum og er bæjarstjórn til ráðuneytis um áfengis- og vímuvarnamál. Nefndin fer einnig með tómstundamál.
  5. Skipulagsnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Skipulagsnefnd annast störf þau er skipulags- og byggingarnefnd er falið skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
  6. Skólanefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara skv. 13. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995. Auk þess fer nefndin með málefni leikskóla og tónlistarskóla. 
  7. Stjórn Akureyrarstofu. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Nefndin fer með menningar­mál, atvinnumál og málefni ferðaþjónustu ásamt kynningu og markaðssetningu bæjarfélagsins. Þá fer nefndin með störf stjórnar almennings­bókasafna.
  8. Stjórnsýslunefnd. Fimm bæjarfulltrúar og fimm til vara. Nefndin fer með málefni stjórnsýslu og innra stjórnskipulag Akureyrarbæjar. Þá fer nefndin með málefni íbúalýðræðis, hverfisnefnda og neytendaráðs. 
  9. Umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Nefndir fer með umhverfis­mál, náttúruvernd og sorpmál. Þá fer nefndin með málefni Staðardagskrár 21. 
  10. Kjörstjórn. Þrír aðalmenn og þrír til vara. Kjörstjórn fer með verkefni kjörstjórnar við alþingiskosningar skv. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og yfirkjörstjórnar við bæjarstjórnarkosningar skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
  11. Skoðunarmenn. Tveir aðalmenn og tveir til vara, sbr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

C. Tilnefningar þingfulltrúa hjá samtökum sveitarfélaga og í stjórnir:

  1. Almannavarnanefnd Eyjafjarðar. Þrír aðalmenn og þrír til vara, sbr. 9. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008.
  2. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar. Þrír aðalmenn og einn til vara, sbr. samþykkt stofnfundar frá 15. nóvember 1998 og stofnsamning Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs. Þessir stjórnarmenn skulu kosnir árlega fyrir aðalfund Atvinnuþróunarfélagsins.
  3. Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar. Fjórir aðalmenn og fjórir til vara samkvæmt grein 2.1 í samningi um stofnun á sameiginlegri barnaverndarnefnd frá 24. nóvember 1999.
  4. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 9. gr. laga um eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
  5. Hafnasamlag Norðurlands. Fimm aðalmenn og fimm til vara, sbr. stofnsamning frá 28. desember 1996.
  6. Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra. Tveir aðalmenn og tveir til vara skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
  7. Héraðsnefnd Eyjafjarðar. Sex aðalmenn og sex til vara, sbr. samþykkt Héraðsnefndar Eyjafjarðar frá 8. desember 1998.
  8. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fimm þingfulltrúar og fimm til vara skv. 7. gr. laga Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  9. Eyþing, samtök sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Sjö aðalmenn og sjö til vara, sbr. samþykkt aðalfundar Eyþings frá 6. júní 1996.
  10. Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra. Einn aðalmaður og einn til vara samkvæmt lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992 og samþykkt frá 2. febrúar 1988.
  11. Skólanefndir Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri. Bæjarstjórn tilnefnir einn fulltrúa og annar til vara í hvora nefnd til Héraðsnefndar sem kýs í nefndirnar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996.
  12. Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarkaupstaðar. Tveir aðalmenn úr hópi bæjarfulltrúa og tveir til vara. Jafnframt eiga sæti í stjórninni tveir fulltrúar Kjalar og tveir til vara og bæjarstjóri sem er formaður, sbr. 4. gr. reglugerðar fyrir Lífeyrissjóð starfsmanna Akureyrarkaupstaðar frá 1. febrúar 1994, ásamt breytingum frá 18. apríl 1996.

 D. Aðrar nefndir sem stofnaðar verða.

60. gr.

     Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils og fyrr sé verkefni þeirra lokið. Bæjarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.

VI. KAFLI

Um framkvæmdastjórn og starfslið bæjarins.

61. gr.

     Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við hann þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarráði.

 62. gr.

     Bæjarstjóri undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarráð og bæjarstjórn. Hann hefur og rétt á sæti á fundum nefnda bæjarins með sömu réttindum.

     Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og málefna bæjarins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn ákveður ekki annað.

     Bæjarstjóri skipar embættismenn í framkvæmdastjórn sem er honum til ráðuneytis um daglegan rekstur bæjarfélagsins. Framkvæmdastjórn skal vinna að því að stjórnsýsla Akureyrarkaupstaðar sé ávallt skilvirk, hagkvæm og örugg ásamt því að hafa frumkvæði að bættri þjónustu og hagræðingu í rekstri.

     Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarráðs að veita öðrum starfsmönnum bæjarins prókúru.

     Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarins.

     Bæjarstjórn ákveður hver skuli gegna störfum bæjarstjóra í forföllum hans.

63. gr.

     Bæjarstjóri, í umboði bæjarstjórnar og að fenginni umsögn viðkomandi fagnefnda, ræður embættismenn sem heyra beint undir hann í skipuriti svo og framkvæmdastjóra fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag sem eru í eigu bæjarsjóðs. Embættismenn ráða forstöðumenn að fenginni umsögn viðkomandi fagnefndar. Embættismenn og forstöðumenn ráða aðra starfs­menn.

64. gr.

     Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga, reglum um ábyrgðarmörk, starfsmannastefnu og jafnréttisáætlun.

 

VII. KAFLI

Um fjármálastjórn bæjarins.

65. gr.

     Fjárhagsár Akureyrarkaupstaðar, stofnana og fyrirtækja hans er almanaksárið.

     Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal bæjarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, fyrirtækja og stofnana bæjarins fyrir næsta ár að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn.

     Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.

     Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

66. gr.

     Fjárhagsáætlun skv. 66. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarins á fjárhagsárinu. Ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöld séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórn.

     Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.

67. gr.

     Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er bæjarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu á bæjarstjórnarfundi, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum bæjarfulltrúum með dagskrá viðkomandi bæjarstjórnarfundar.

68. gr.

     Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal bæjarstjórn semja áætlun næstu þriggja ára um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarins. Þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir bæjarins. Skal hún unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

69. gr.

     Strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar skal senda samgönguráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 67. gr. og þriggja ára áætlun skv. 69. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 66. gr.

70. gr.

     Ársreikningur bæjarins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar.

     Bæjarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna.

     Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana bæjarins og fyrirtækja hans eigi síðar en 1. júní ár hvert. Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikninginn.

     Eintak af ársreikningnum skal sent samgönguráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna. 

Samþykkt í bæjarstjórn  20. janúar 2009
Staðfest af samgönguráðuneyti 17. febrúar 2009