Dagskrá bæjarstjórnarfunda

Bæjarstjórnarfundir eru að jafnaði fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Í júlí og ágúst er sumarleyfi bæjarstjórnar og hefur bæjarráð þá heimild til fullnaðarafgreiðslu mála. Fundirnir eru haldnir í bæjarstjórnarsalnum í Geislagötu 9, 4. hæð og hefjast kl. 16.00. Sjónvarpað er frá fundunum sama dag kl. 21.00 á sjónvarpsstöðinni N4. Upptökur frá fundunum er hægt að nálgast á heimasíðu Akureyrarbæjar frá hádegi næsta dags eftir fund.

--------------------

 

Bæjarstjórn  - Fundarboð 

3321. fundur

22. maí 2012  kl. 16:00

Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi 

  

1.

Svæðisskipulag   Eyjafjarðar 2011-2023

 

2011100003

 

1. liður   í fundargerð skipulagsnefndar dags. 9. maí 2012:
  Tekið fyrir að nýju í framhaldi af bókun skipulagsnefndar frá 25. apríl sl.   um staðsetningu sameiginlegs urðunarstaðar í Eyjafirði.
  Þann 2. október sl. var aðildarsveitarfélögum svæðisskipulagsins send til   umsagnar, með vísan til 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, lýsing á   skipulagsverkefninu "Svæðisskipulag Eyjafjarðar 2011-2023" ásamt   fylgiriti þar sem gerð var grein fyrir helstu forsendum væntanlegrar   skipulagstillögu. Þrjú sveitarfélög gerðu athugasemdir við nokkra þætti   lýsingarinnar. Tekið hefur verið tillit til hluta þeirra í meðfylgjandi   gögnum og gerð er grein fyrir afgreiðslu þeirra efnisþátta sem ekki þótti   ástæða til að færa inn í væntanlega skipulagstillögu.
  Samvinnunefndin óskar eftir athugasemdum við meðfylgjandi gögn.
  Sveitarfélögin á skipulagssvæðinu reka sameiginlega einkahlutafélagið Flokkun   ehf, sem annast stefnumótun og áætlunargerð um meðhöndlun úrgangs á svæðinu,   ásamt endurskoðun á gildandi svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2005-2020.   Hlutverk félagsins er einnig að fjalla um framtíðar fyrirkomulag á endurvinnslu   og förgun úrgangs á svæðinu.
  Skipulagsnefnd telur að efniskafli um sorpmál eigi að vera hluti af   svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2011-2023 þó svo að sameiginlegur urðunarstaður í   Eyjafirði sé ekki í augsýn og verði ekki skilgreindur í svæðisskipulaginu sem   nú er í endurskoðun.
  Skipulagsnefnd telur nauðsynlegt að í skipulagslýsingunni komi fram stefna   hins sameiginlega félags um hvernig sorpmálum verði háttað á svæðinu til   lengri tíma litið og að gerðar verði tillögur um samræmda meðhöndlun úrgangs,   þ.m.t. flokkun almenns sorps.

 

 

 

2.

Stefnuumræða   í bæjarstjórn 2012 - framkvæmdaráð/stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

 

2012010347

 

Starfsáætlun   framkvæmdaráðs/stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar. Oddur Helgi Halldórsson   formaður framkvæmdaráðs/stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar gerir grein fyrir   áætluninni.

 

 

 

3.

Skýrsla   bæjarstjóra

 

2010090095

 

Eiríkur   Björn Björgvinsson bæjarstjóri fer yfir helstu atriði í störfum sínum frá   síðasta bæjarstjórnarfundi.

 

Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Bæjarráð 10. maí 2012

Skipulagsnefnd 9. maí 2012

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 9. og 16. maí 2012

Framkvæmdaráð 11. maí 2012

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 11. maí 2012

Stjórn Akureyrarstofu 2. maí 2012

Skólanefnd 7. maí 2012

Íþróttaráð 10. maí 2012

Félagsmálaráð 9. maí 2012

Samfélags- og mannréttindaráð 9. og 16. maí 2012

Umhverfisnefnd 8. maí 2012

 

Akureyri 18.  maí 2012

Eiríkur Björn Björgvinsson
bæjarstjóri

 

Áætlun um næstu fundi bæjarstjórnar:

5. júní

19. júní

-------------

4. september

18. september

-----------

2. október

16. október

------------

6. nóvember

20. nóvember

------------

4. desember

18. desember

------------