Bæjarfulltrúar á Akureyri 1998 - 2002


 

 

Ásgeir Magnússon

er fæddur 3. mars. 1950 og uppalinn á Flateyri. Hann er rafmagnstæknifræðingur frá Tækniháskólanum í Árósum í Danmörku. Ásgeir var bæjarstjóri í Neskaupsstað 1984 - 1991, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar 1991 - 1995, framkvæmdastjóri Foldu 1995 - 1996 og forstöðumaður Skrifstofu atvinnulífsins á Norðurlandi síðan 1996.

Hann var kosinn í bæjarstjórn Akureyrar 1998 fyrir Akureyrarlistann, er 1. varaforseti bæjarstjórnar, formaður bæjarráðs og framkvæmdanefndar og á sæti í kjarasamninganefnd.

Ásgeir er kvæntur Ásthildi Lárusdóttur og eiga þau 3 börn.

 

 

Ásta Sigurðardóttir

er fædd 20. febrúar 1943 og uppalin á Akureyri. Hún er sjúkraliði og hefur unnið á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri síðan námi lauk 1974, að undanteknu ári er hún var við nám í Reykjavík.

Ásta hefur setið í bæjarstjórn síðan 1994 fyrir Framsóknarflokkinn. Hún er 2. varaforseti bæjarstjórnar, situr í félagsmálaráði og stjórn veitustofnana.

Ásta var gift Ingimar Eydal, sem lést 1993 og eru börn þeirra fjögur uppkomin.

 

 

Guðmundur Ómar Guðmundsson

er fæddur 29. júlí 1946 og ólst upp í Öngulstaðahreppi og á Akureyri. Hann er húsasmíðameistari. Hann starfaði sem húsasmiður á Akureyri á árunum 1963 - 1980 en síðan hefur hann verið formaður og framkvæmdastjóri Trésmiðafélags Akureyrar og síðan Félags byggingamanna, Eyjafirði.

Guðmundur Ómar er aðalmaður í bæjarstjórn frá 1. september 1999.

Hann er kvæntur Önnu Ingólfsdóttur og eiga þau 4 börn.

 

 

Jakob Björnsson

er fæddur 27. apríl 1950 og uppalinn á Vopnafirði. Hann lauk prófi frá Samvinnuskólanum á Bifröst og stundaði framhaldsnám í viðskiptafræðum við Háskóla Íslands. Auk þess stundaði hann nám í viðskiptum og verslunarrekstri í Noregi um nokkurra ára skeið. Jakob hefur unnið við verslun og fyrirtækjastjórnun, bæði hérlendis og erlendis. Hann var bæjarstjóri á Akureyri 1994 - 98.

Jakob hefur setið í bæjarstjórn Akureyrar fyrir Framsóknarflokkinn síðan 1990. Hann situr í bæjarráði, félagsmálaráði og framkvæmdanefnd.

Jakob er kvæntur Lindu Björnsson og eiga þau einn son.

 

 

Kristján Þór Júlíusson

er fæddur 15. júlí 1957 og uppalinn á Dalvík. Hann lauk skipstjórnarprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og stundaði síðan nám í íslensku við Háskóla Íslands. Hann var bæjarstjóri á Dalvík 1986 ? 1994 og á Ísafirði 1994 - 1997 og er nú bæjarstjóri á Akureyri.

Hann var kosinn í bæjarstjórn Akureyrar fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1998.

Hann er kvæntur Guðbjörgu Ringsted og eiga þau 4 börn.

 

 

Oddur Helgi Halldórsson

er fæddur 24. mars 1959 og uppalinn á Akureyri. Hann lauk fyrst námi í blikksmíði og hefur síðan 1986 rekið eigið fyrirtæki, Blikkrás ehf á Akureyri. Hann er iðnrekstrarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri.

Oddur kom inn í bæjarstjórn sem varamaður fyrir Framsóknarflokkinn í ágúst 1997 og var kosinn í bæjarstjórn fyrir Lista fólksins 1998. Hann situr í bæjarráði og framkvæmdanefnd.

Eiginkona hans er Margrét Harpa Þorsteinsdóttir og eiga þau 3 börn.

 

 

Oktavía Jóhannesdóttir

er fædd 24. október 1958 og er uppalin í Hafnarfirði og í Írafossvirkjun. Hún er stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Hún hefur starfað sem húsmóðir og við ýmis almenn störf.

Oktavía var kosin í bæjarstjórn 1998 fyrir Akureyrarlistann. Hún er formaður félagsmálaráðs.

Eiginmaður hennar er Karl Gunnlaugsson og eiga þau 5 börn.

 

 

Páll Tómasson
er fæddur 4. júní 1956 í Reykjavík en alinn upp á Akureyri. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði 1977 og námi í arkitektur frá Danmörku 1984 og hefur rekið eigin arkitektastofu síðan.
Maki er Sigríður Agnarsdóttir og eiga þau 4 börn.

Páll var kosinn varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1998 og kom inn sem aðalmaður í bæjarstjórn 1. mars 2002. Hann er formaður stjórnar Norðurorku og situr í menningarmálanefnd og stjórn eignarhaldsfélagsins Rangárvalla.



 

 

Steingrímur Birgisson

er fæddur 13. desember 1964 í Reykjavík og ólst upp þar. Hann flutti til Akureyrar 1980, útskrifaðist sem stúdent frá M.A. 1984 og sem viðskiptafræðingur af stjórnunarsviði frá Háskóla Íslands 1989. Var aðstoðarframkvæmdastjóri Hölds frá 1993 og er framkvæmdastjóri Hölds frá 1. febrúar 2001. Maki er Svanhildur Vilhelmsdóttir læknir. Þau eiga tvær dætur, Eddu og Þórhildi.  

Steingrímur var kosinn varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1998 og kom inn sem aðalmaður í bæjarstjórn 1. október 2001. Hann situr í framkvæmdaráði og stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar.

Þóra Ákadóttir
er fædd 27. maí 1954 á Akureyri og ólst þar upp. Hún lauk prófi frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1979. Lauk námi í Stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu við HÍ 1998 og er í mastersnámi við Norræna heilsuháskólann í Gautaborg. Hún starfaði sem hjúkrunarforstjóri við heilsugæslustöðina á Dalvík á árunum 1981 1990, hjúkrunarforstjóri Kristnessítala 1990 1993 og síðan þá við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og starfsmannastjóri hjúkrunar frá 1995.
Þóra var kosin varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1998 og kom inn sem aðalmaður í bæjarstjórn í ágúst 2001. Hún situr í félagsmálaráði, framkvæmdaráði, umhverfisráði og stjórn Myndlistaskólans á Akureyri.
Þóra er gift Ólafi B. Thoroddsen. Þau eiga 3 syni.

 

Þórarinn Blómkvist Jónsson

er fæddur 13. nóvember 1944 og uppalinn á Akureyri. Að loknu gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar var hann 1 ár við verslunarnám í Bandaríkjunum. Hann hefur starfað að tryggingamálum og hefur verið umboðsmaður Sjóvá-Almennra á Akureyri síðan 1989.

Þórarinn hefur setið í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðan 1994. Hann er formaður kjarasamninganefndar og íþrótta- og tómstundaráðs og á sæti í framkvæmdanefnd.

Þórarinn er kvæntur Huldu Vilhjálmsdóttur og eiga þau 3 dætur.