Kattahald - gjaldskrá

GJALDSKRÁ
fyrir kattahald  í Akureyrarkaupstað.

Nr. 1017 13. október 2011

1. gr.

Við skráningu kattar skal greiða skráningargjald kr. 7.500.

2. gr.

Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna kattar kr. 6.000.

3. gr.

Af köttum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Akureyrarkaupstaðar samkvæmt 12. gr. samþykktar um kattahald á Akureyri nr. 429/2011 skal greiða handsömunar-, fóður- og vistunargjald samkvæmt gjaldskrá þessari. Ef köttur er ekki örmerktur samkvæmt 8. gr. sömu samþykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem framkvæma slíkt.

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs kattar ber að innheimta kr. 5.000 vegna handsömunar og 800 kr. fyrir hvern dag sem köttur er vistaður í kattageymslu fyrir fóður og vistun. Gjald fyrir örmerkingu kattar fer eftir gjaldskrá viðkomandi dýralæknis hverju sinni.

5. gr.

Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar, með heimild í 5. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir kattahald í Akureyrarkaupstað nr. 288/2011.

Samþykkt í bæjarstjórn Akureyrar 1. mars 2011.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 13. október 2011,

Inga Þöll Þórgnýsdóttir

 

bæjarlögmaður.

__________

B-deild – Útgáfud.: 31. október 2011