Telji starfsmaður sér mismunað m.t.t. kynferðis og að hann fái ekki úrlausn hjá yfirmanni sínum eða starfsmannastjóra, skal jafnréttisráðgjafi veita viðkomandi aðstoð við að leita réttar síns. Þetta á bæði við um störf og starfsaðstæður sem varða jafnrétti og samskipti kynjanna á vinnustað.
Um meðferð erinda sem berast jafnréttisráðgjafa um aðstoð í jafnréttismálum gilda eftirfarandi meginreglur:
a) Erindi og ábendingar um jafnréttismál sem berast jafnréttisráðgjafa geta verið hvort heldur sem er munnleg eða skrifleg en skulu eftir atvikum studd gögnum. Jafnréttisráðgjafi skal hraða meðferð mála svo sem unnt er.
b) Jafnréttisráðgjafa ber að tilkynna viðkomandi forstöðumanni og starfsmannastjóra um erindi sem honum berst og skal forstöðumaður skila jafnréttisráðgjafa greinargerð um erindið innan 14 daga frá því honum er kynnt það. Stjórnendur og aðrir starfsmenn bæjarins skulu veita jafnréttisráðgjafa allar upplýsingar sem hann telur þörf á til að kanna réttmæti erinda og ábendinga. Fyrirspurnum jafnréttisráðgjafa skal svarað innan 14 daga frá móttöku þeirra nema sérstakar ástæður hamli.
c) Jafnréttisráðgjafi getur í samráði við forstöðumann kallað sérhvern starfsmann deildar eða stofnunar á vegum bæjarins á sinn fund til að veita upplýsingar er varða meðferð máls.
d) Jafnréttisráðgjafi skilar áliti og tillögum að lausn mála til viðkomandi forstöðumanns og starfsmannastjóra. Verði ágreiningur um lausn mála skal honum vísað til úrlausnar jafnréttis- og fjölskyldunefndar sem gerir tillögur til viðkomandi fagnefndar en getur síðan eftir atvikum vísað málinu til kærunefndar jafnréttismála.
e) Jafnréttisráðgjafi hefur eftirlit með því að tillögum að úrlausnum sem samþykktar hafa verið, sé framfylgt. Stjórnendur og aðrir starfsmenn skulu veita honum allar upplýsingar sem hann telur nauðsynlegar í þeim tilgangi.
f) Sú/sá sem leitar liðsinnis jafnréttisráðgjafa skal njóta verndar gegn hvers kyns sértækum breytingum á starfi, starfsaðstæðum og kjörum á meðan málið er til umfjöllunar nema gildar ástæður séu fyrir hendi.
