Fötluð börn

Ýmis þjónusta er í boði fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Þjónustan er veitt bæði af Búsetudeild og Fjölskyldudeild en mikil samvinna er á milli deilda þannig að fjölskyldur fái stuðning við hæfi. Má þar nefna ráðgjöf og þjálfun, samþættingu þjónustu, skammtímavistun, félagslega liðveislu, stuðningsfjölskyldur, skólavistun í Árholti og heimaþjónustu.  Í tengslum við leik- og grunnskóla er veitt ráðgjöf og stuðningur við börn með fötlun.

Tengiliður: Þóra Elín Arnardóttir, þroskaþjálfi, Fjölskyldudeild

netfang: thoraelin@akureyri.is

sími: 460-1420