Álagningarseðlar á island.is - reikningar á eg.akureyri.is
Akureyrarbær sendir ekki út álagningar- og greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum árið 2012 til einstaklinga yngri en 67 ára.
Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsíðunni island.is undir "Mínar síður". Innskráning er með veflykli
ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum. Kröfur vegna fasteignagjalda birtast sem fyrr í netbanka greiðanda. Einstaklingar eldri en 67 ára
fá áfram senda álagningar- og greiðsluseðla auk þess sem fyrirtæki og stofnanir fá senda seðla.
Allir greiðendur fasteignagjalda, sem og annarra gjalda frá Akureyrarbæ, geta séð útgefna reikninga á sinni kennitölu á vefsíðunni eg.akureyri.is undir "Reikningsyfirlit". Einnig er hægt að senda póst til starfsfólks Akureyrarbæjar undir Ábendingar og athugasemdir. Þegar farið er inn á vefinn í fyrsta skipti er sótt um lykilorð sem hægt er að fá sent í netbanka eða sækja í Ráðhúsið Geislagötu 9, gegn framvísun skilríkja.
