Vorboðinn kominn í Grímsey

Vorboðinn kominn í Grímsey Fyrstu rauðmagar ársins veiddust við Grímsey í morgun en þar á bæ eru þeir kallaðir vorboðar, órækur vitnisburður um að sólin

Flýtilyklar

Vorboðinn kominn í Grímsey

Hrognkelsi. Mynd: Visindavefurinn.is.
Hrognkelsi. Mynd: Visindavefurinn.is.

Fyrstu rauðmagar ársins veiddust við Grímsey í morgun en þar á bæ eru þeir kallaðir vorboðar, órækur vitnisburður um að sólin hækkar á lofti og líður að vori. Rauðmagarnir fengust í net sem eru lögð yfir vetartímann á um 50-60 faðma dýpi. Netin eru látin liggja í sólarhring og þegar þau voru tekin upp í morgun blöstu við þessir fögru vorboðar.

Á föstudag gera Grímseyingar gera sér glað dag á bóndadegi sem ávallt er haldinn hátíðlegur í eyjunni. Kvenfélagið selur þá aðgang að glæsilegu hlaðborði í félagsheimilinu Múla og öllum körlum í eyjunni verða færð blóm í tilefni dagsins.


-2°A 2 m/s

Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.


Stjórnkerfi Akureyrarbæjar er tvískipt eins og önnur opinber stjórnkerfi á Íslandi. Annars vegar er pólitíska kerfið, bæjarstjórn sem lýðræðislega kjörnir bæjarfulltrúar skipa, og fastanefndir en í þeim sitja bæjarfulltrúar og aðrir sem bæjarstjórn kýs. Æðsti yfirmaður pólitíska kerfisins er forseti bæjarstjórnar. Hins vegar er embættismannakerfið, þ.e. ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann.


Hér finnur þú ýmis umsóknareyðublöð og auglýsingar frá Akureyrarbæ. Einnig er hægt að fara inn á íbúavef Akureyrarbæjar til að skoða reikninga og fleira.

 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16

Netföng og símanúmer     |     Laus störf     |     Hafa samband