Völuspá í Hofi

Völuspá, Frans Liszt og Sibelius verða á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Menningarhúsinu Hofi sunnudaginn 14. febrúar kl. 20.00. Völuspá er nýtt sinfónískt verk eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson fyrir söngkonu, sinfóníuhljómsveit og kór. Verkið er samið upp úr ljóðum Völuspár og Valgerður Guðnadóttir syngur hlutverk Völvunnar. Kórarnir sem taka þátt í flutningi verksins eru Hymnodia og Kammerkór Norðurlands.

Þorvaldur Bjarni hefur samið tónlist við fjölda söngleikja, má þar nefna Gosa, Benedikt Búálf og Ávaxtakörfuna. Hann er gítarleikari og lagahöfundur Todmobile og hefur samið og tekið upp tónlist fyrir allar tegundir miðla samtímans.

Valgerður á sér frækinn feril í söngleikjum og óperum. Eftirminnileg er frammistaða hennar í Vesalingunum í uppsetningu Þjóðleikhússins árið 2011 þar sem hún söng hlutverk hinnar ólánssömu Fantine.

Ljóð Völuspár eru í dag ein okkar helsta heimild um norræna goðafræði. Í ljóðunum er sagt frá sögu heimsins, allt frá sköpun til ragnaraka og er það í gegnum samtal Völvu og Óðins sem við fáum að upplifa sögu Goðanna. Nýtt videólistaverk eftir Sól Hrafnsdóttur verður flutt samhliða verkinu og verður því varpað á bíótjald á bakvið hljómsveitina.

Einnig verða flutt stórvikin Promotheus eftir Frans Liszt og Pan og Ecco eftir Sibelius.

Miðar á Völuspá í Hofi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan