Fjarfundur á Akureyri um gerð umsókna í Nordplus-menntaáætluninni

Mánudaginn 6. febrúar kl. 15.00-16.30 verður haldinn í Háskólanum á Akureyri fjarfundur um gerð umsókna í Nordplus- menntaáætluninni. Fjarfundurinn er ætlaður umsækjendum frá leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum, háskólum, fullorðinsfræðslu og hverjum þeim sem hefur áhuga á Nordplus-samstarfi og ætlar að sækja um styrki til verkefna fyrir skólaárið 2012-2013. 

Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi kynnt sér Nordplus menntaáætlunina og séu komnir vel á veg með samstarfsaðila.

Sigrún Ólafsdóttir verkefnisstjóri Nordplus mun leiða þátttakendur í allan sannleika um umsóknakerfið og fjárhagsáætlanir.

Áhugasamir hafa samband við Norrænu upplýsingaskrifstofuna í síma 462 7000 eða með tölvupósti til nordeninfo@akureyri.is.

Nánari upplýsingar á http://www.nordenifo.is/.