Ekkert Dirty Night á Akureyri

Ekkert Dirty Night á Akureyri Undanfarið hefur birst á samfélagsmiðlinum Facebook auglýsing frá agent.is um Dirty Night sem halda átti í Sjallanum á

Flýtilyklar

Ekkert Dirty Night á Akureyri

Sjallinn á Akureyri.
Sjallinn á Akureyri.

Undanfarið hefur birst á samfélagsmiðlinum Facebook auglýsing frá agent.is um Dirty Night sem halda átti í Sjallanum á Akureyri laugardagskvöldið 4. febrúar nk. Akureyrarbær, rekstraraðilar Sjallans og agent.is komust í gær að samkomulagi um að Sjallinn aflýsi þessum viðburði þar sem hann stríðir mjög gegn jafnréttisstefnu bæjarins þar sem m.a. er lögð áhersla á að vinna gegn stöðluðum kynjaímyndum.

Viðburðir sem þessir hafa verið haldnir víða um land og verið mjög umdeildir, enda um að ræða hugmyndafræði sem lýtur að stöðluðum kynjaímyndum.

Akureyrarbær fagnar þessum málalokum og þeirri samfélagslegu ábyrgð sem rekstraraðilar Sjallans hafa sýnt í þessu máli.


-2°A 2 m/s

Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.


Stjórnkerfi Akureyrarbæjar er tvískipt eins og önnur opinber stjórnkerfi á Íslandi. Annars vegar er pólitíska kerfið, bæjarstjórn sem lýðræðislega kjörnir bæjarfulltrúar skipa, og fastanefndir en í þeim sitja bæjarfulltrúar og aðrir sem bæjarstjórn kýs. Æðsti yfirmaður pólitíska kerfisins er forseti bæjarstjórnar. Hins vegar er embættismannakerfið, þ.e. ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann.


Hér finnur þú ýmis umsóknareyðublöð og auglýsingar frá Akureyrarbæ. Einnig er hægt að fara inn á íbúavef Akureyrarbæjar til að skoða reikninga og fleira.

 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16

Netföng og símanúmer     |     Laus störf     |     Hafa samband